First day!
Fyrsti vinnudagurinn minn var í gær. Gekk bara vel og haft var á orði að ég væri mjög efficient og fljót að vinna....hehe ekki í fyrsta skipti sem það er sagt við mig, enda er ég yfirleitt svona rétt örlítið á undan sjálfri mér hahahahaha! Frekar fljótfær týpa og vil vinna hratt.....þarf stundum að passa sjálfa mig þegar ég er að kenna, borgar sig ekki að fara fram úr sjálfum sér og hvað þá nemendum. Hef stundum þurft að hægja aðeins á mér....fatta það yfirleitt þegar spurnaraugu taka yfir andlit nemenda ;) Já, það verður nú gaman að fara að kenna aftur.....eins gott að maður sé ekki farinn að ryðga hehe ;)
Skólinn byrjaður á fullu, gaman gaman. Svolítið skrýtið að sjá allt í einu í endann á náminu....virtist í svo mikilli órafjarlægð þarna fyrst. En tíminn líður hratt!!! Allt í einu er síðasta önnin orðinn veruleiki.
Jæja maður orðinn heimspekilegur hér á síðustu metrunum. Enn snjóar hjá okkur en kuldinn aðeins að minnka. Jæja, tilbreyting frá rigningunni allaveganna ;)
Kv. SRS
Skólinn byrjaður á fullu, gaman gaman. Svolítið skrýtið að sjá allt í einu í endann á náminu....virtist í svo mikilli órafjarlægð þarna fyrst. En tíminn líður hratt!!! Allt í einu er síðasta önnin orðinn veruleiki.
Jæja maður orðinn heimspekilegur hér á síðustu metrunum. Enn snjóar hjá okkur en kuldinn aðeins að minnka. Jæja, tilbreyting frá rigningunni allaveganna ;)
Kv. SRS

2 Comments:
Til hamingju með nýju vinnunna:) Já, sýndu nú þessu fólki hvernig á að vinna almennilega:) Annars var ég að heyra að á leikskólanum á Vellinum hefðu fóstrurnar ekki mátt skeina börnin eftir að þau gátu það sjálf... og ef einhver hegðunarvandamál komu upp þurfti fólk að hringja í foreldrana til þess að fá þau að koma og útkljá málið. Sem sagt til þess að ekki yrði hægt að kæra fóstrurnar fyrir eitthvað sem hægt hefði verið að túlka á annan máta. Oh my god hvað fólk getur verið klikk. Er þetta svona hjá þér?:)
By
Halla, at 12:16 AM
Takk fyrir það Halla :)
Hehe held að þeir taki nú eitthvað á hegðunarvanda...eru allaveganna með time out fyrir stærri málin. Börnin sjá allaveganna um að fara sjálf á klósettið svo ég veit ekki alveg um það...hef allaveganna ekki þurft að skeina neinn hehehehe ;)
En hér er samt ýmislegt að fara fyrir dómstóla í skólakerfinu....ekki alveg eins slæmt og í Bandaríkjunum segja þeir Kanadamennirnir en einn kennarinn minn sagði að Kanada væri á góðri leið með það...mikið af svona special education málum í gangi.
Frekar ólíkt litla Íslandi ;)
By
Sigridur Ros, at 6:36 PM
Post a Comment
<< Home