Sigga Rós og Hjalti

Saturday, March 31, 2007

Gluggagægir!

Undanfarna daga hafa verið menn hangandi fyrir utan gluggana hjá okkur!!!! Já, hljómar kannski undarlega en þetta voru nú bara gluggaþvottamenn. Eru búnir að vera að þrífa alla gluggana á blokkinni okkar. Mjög fyndið að sjá allt í einu kaðal á hreyfingu fyrir utan gluggann og svo allt í einu sér maður móta fyrir manneskju! Þessir kallar festa sig í kaðal á efstu hæðinni og dingla svo bara með vatnsfötu og gluggasköfu. Jiiiii hvað ég gæti ekki unnið svona starf, það er nú alveg á hreinu.

Annars styttist í skólalok! Ég á bara eftir að fara í einn tíma en formlega eru bara tvær vikur eftir af skólanum. Ótrúlegt að þetta sé að verða búið. Ég var mjög fegin að ég var í fyrsta hópnum sem kynnti, nú getur maður bara mætt, slakað á og hlustað af athygli á hina. Miklu betra en að sitja stífur og með strengi í andlitinu yfir að hugsa um sína eigin kynningu á meðan aðrir kynna hehe ;) Ég er nánast búin með verkefnið mitt, aðeins eftir að snurfusa og svona en lokaskil eru ekki fyrr en 12.apríl. Ég verð nú löngu búin fyrir þann tíma.

Annars má með sanni segja að ég sé orðinn formaður The Babysitters Club haha. Tók enn eitt barnið að mér, litla 7 mán stelpu einu sinni í viku. Mamman biðlaði svo sætt og fallega til mín, er í stökustu vandræðum með pössun greyið. Það er ágætt bara, það passar líka vel tímalega séð því skólinn er að klárast.
Ef að það verður vinstri stjórn á Íslandi þá flyt ég bara aftur til Kanada og stofna Daycare þjónustu hehehehe ;) Nú vitum við hvar og hvenær við eigum að kjósa, höfum hvorug kosið utankjörfundar áður svo það verður alveg svaðalega spennandi hehe :) Eeeeen við vitum auðvitað hvað á að kjósa, nema hvað. Maður getur nú ekki varist sínu bláa blóði hehehehehe.
Kv.SRS

2 Comments:

  • þú ert bara orðin hörku barnapía þarna úti Sigga.
    Það er nú eins gott að vita hvað maður á að kjósa en var búin að því heima um daginn en það getur verið að atkvæðið mitt hafi klúðrast en það kemur í ljós. Vonandi fer þetta bara allt rétt og vel í vor:)

    By Anonymous Anonymous, at 4:52 PM  

  • það er einmitt síðasti skóladagurinn minn í dag.....tja ef ekkert klikkar, 7-9-13...en auðvita tvö próf og ein ritgerð eftir....samt gaman :)

    By Blogger Vala, at 1:28 PM  

Post a Comment

<< Home