Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, March 27, 2007

Helgin

Á laugardaginn hittum við Chris og fleira fólk og fórum á æfingu hjá Vancouver Canucks, hockey team. Canucks voru semsagt með opna æfingu, frítt inn og hellingur af fólki og þá aðallega fjölskyldufólki. Þetta var ágætt, bjuggumst við meiri hasar....kannski væri þetta betra ef maður kynni reglur og fleira tengt hockey he he ;) Á tímabili var litli strákurinn sem sat fyrir framan okkur meira skemmtiatriði en blessað liðið hehe ;)


Eftir hockey practice fórum við á Vancouver Art Museum með Chris og Daniel vini hans. Þar var ljósmyndari með sýningu, myndir sem hann tók á 6. og 7. áratugnum í Vancouver. Það var ágætt, gaman að sjá hvað borgin hefur breyst mikið á þessum árum. Stend samt sem áður fast við mína skoðun.....söfn eru einfaldlega leiðinleg!!! Held að það sé eitthvað í loftinu inni á svona söfnum sem gerir það að verkum að mig syfjar óendalega mikið, leiðist heiftarlega og langar að komast út undir bert loft sem fyrst!!! Ég er svo sannarlega búin með minn skammt af söfnum í bili ;)

Vancouver Art Gallery - Daniel, vinur Chris, skoðar símann sinn. Ekki veit ég þó hvað fólkið er að gera við bílinn þarna í baksýn....koma svo ýta!!!


Einhverjum datt í hug að fara í koddaslag! Það var semsagt skipulagður hópkoddaslagur úti á miðri götu við Robson street. Fólkið fagnaði ógurlega þegar fiður þeyttist um allt!

Og þemað var rigningardagur í Vancouver. Þá veitir nú ekki af því að hafa regnhlíf í hvorri hendi ;)

1 Comments:

  • Ji ég skil þig með söfnin..... Það er eins með söfn og IKEA, maður bara labbar hratt í gegnum nema maður sjái eitthvað sem heillar, þá staldrar maður aðeins við ;-) híhíhí
    Hvað er málið með þennan bíl, held ég hafi sjaldan séð eins furðulegan bíl! Skyldu vera gluggar að framan til að sjá út um?!?!
    Kv. Sandra

    By Anonymous Anonymous, at 9:50 AM  

Post a Comment

<< Home