Sigga Rós og Hjalti

Friday, March 16, 2007

JEEEESSSSS!!!

Var að ljúka kynningunni minni....jess jess jess! Ohh hvað var gott að vera búin, maður er alltaf svolítið stressaður fyrir eitthvað svona, en það er mjög gott að vera búin og geta núna hlustað á hina í rólegheitunum. Það var send tilkynning út til deildarinnar um daginn þar sem dagskráin var kynnt fyrir kennurum og nemendum deildarinnar. Var pínu stressandi að vita ekkert hvað margir myndu mæta og svoleiðis. Annars voru auðvitað allir nemendurnir í graduating kúrsinum mættir ásamt kennaranum okkar, svo mætti supervisorinn minn og ein önnur kona sem er supervisor, Nozomi japanska vinkona mín mætti til að sjá mig og svo var ein önnur kóresk stelpa sem ég þekki sem einnig mætti til að sjá okkur kynna. Þegar síðasta kynning kvöldsins var mættu 8 manns aukalega með einni....öll fjölskyldan hennar!!!
Kynningin mín gekk rosalega vel, víkingaþemað þótti skemmtilegt og sniðugt og ég náði að koma þessu skilmerkilega frá mér og meira að segja náði ég að fá fólk til að hlægja og hafa gaman ;)

Þannig að nú er ég sátt og sæl, búin með mínar 45 mínútur og get bara einbeitt mér að lokaskilunum. Ekki frá því að ég hlakki bara til helgarinnar.....stefnan tekin á námsmannabíóið og The Pursuit of Happyness :)

Kv.SRS

7 Comments:

  • til hamingju skvísa :)

    By Blogger Brynja, at 9:14 AM  

  • frábært......til hamingju með þennan áfanga Sigga mín :)

    By Blogger Vala, at 9:47 AM  

  • Dugleg ;-) Til hamingju með að vera búin með kynninguna ;-) Heilar 45 mín... vá... en þið kennarar eruð vanir, þurfið náttúrulega að "predika" svona lengi í einu, hehehehehehe

    By Anonymous Anonymous, at 9:56 AM  

  • Takk fyrir það....ánægjulegur léttir :)
    Fékk líka hlýleg orð frá kennaranum mínum í tölvupósti í morgun...alltaf gaman að fá svoleiðis :)
    Já Sandra, þessar kynningar venjast nú, þó maður sé alltaf jafn stressaður hahaha...held ég sé núna fyrst að venjast...svona rétt áður en ég hætti hehe ;)

    By Blogger Sigridur Ros, at 9:26 PM  

  • Vá til hamingju með að hafa klárað kynninguna með glans!!!

    Svona hlutum á maður að fagna því það eru nefnilega ekki allir sem geta staðið í 45 mín og haldið áhugaverða kynningu á öðru tungumáli en móðurmálinu...

    Well done :)

    guðrún

    By Blogger Unknown, at 8:51 AM  

  • Innilega til hamingju Sigga..þú ert algjör hetja:)

    By Anonymous Anonymous, at 4:48 PM  

  • Takk fyrir :)

    By Blogger Sigridur Ros, at 7:40 PM  

Post a Comment

<< Home