San Francisco ferðasagan
Komum heim í gærkvöldi eftir frábæra ferð til San Fran. Ferðalagið hófst á þriðjudagsmorgun með flottu morgunflugi til San Fran. Þegar þangað var komið tókum við BART (þó ekki Simpson) lestina af flugvellinum og niður í bæ. Röltum um Union square, niður að höfninni, röltum upp í Coit tower þar sem við vorum með frábært útsýni yfir borgina, röltum í gegnum Chinatown sem er by the way elsta Chinatown í USA og fórum svo út að borða um kvöldið á southern stað sem bauð upp á blús hljómsveit á meðan maður borðaði....fínn stemmari þar :)
Miðvikudagurinn var tekinn snemma. Fórum með Cable Car niður að höfn þar sem við fórum í siglingu í Alcatraz fangelsið. Fengum svaka flott veður og það var virkilega gaman að skoða þetta fangelsi. Ekki verið gaman að vera fangi þarna býst ég við en þarna voru nú allir þeir svaðalegustu í bransanum. Það sem mér fannst merkilegast var að þarna á eyjunni bjuggu fangaverðirnir með fjölskyldurnar sínar, þannig að það voru börn sem ólust upp á eyjunni....hugsið ykkur að alast upp við hliðina á Alcatraz fangelsinu!!!
Eftir Alcatraz röltum við í Fishermans Wharf og röltum svo nánast út um alla San Fran borg! Kíktum á fallegu gömlu húsin, fórum á Lombard street-hlykkjóttu götuna og svo auðvitað aðalatriðið Golden Gate brúna. Hún er alveg stórkostleg. Við röltum nú ekki alveg yfir en eitthvað út á hana allaveganna. Maður fann alveg víbringinn af bílunum og ekki var handriðið nú hátt...eeeeen þvílíkt útsýni af brúnni, alveg frábært.
Síðasta daginn okkar var veðrið ekki eins gott en við kíktum í búðir og röltum um downtown. Síðan var BART lestin tekin á flugvöllinn og haldið heim á leið. Ansi góð ferð og bara gaman. Kom okkur samt pínu á óvart að veðrið væri ekki betra. Maður var búinn að búast við Kaliforníu veðri alla daga en það var alltaf mikill vindur og ekkert svakalega heitt. Meira svona peysuveður bara. Gátum því ekki notað stuttermaskyrturnar í þessari ferð hehe ;)
En hér eru myndirnar :)

1 Comments:
Já ég var líka fyrir miklum vonbrigðum með veðrið í San Fran þegar við vorum þar. Það var alltaf þoka líka, ekki gaman.
En þetta er samt rosa flott borg:)
By
Anonymous, at 7:35 PM
Post a Comment
<< Home