Sigga Rós og Hjalti

Thursday, May 10, 2007

Júró júró!

Eins og sönnum Íslendingi sæmir þá stöðvaðist líf okkar í þrjá tíma á meðan við horfðum á hið geysivinsæla Eurovision! Náðum að horfa á það í beinni útsendingu af júróvefnum. Komum okkur vel fyrir með japanskan take out og súkkulaði (enda hádegi hjá okkur hehe). Eiríkur stóð sig vel og var að mínu mati með besta lagið. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum enda er þessi undankeppni í Júró svo hrútleiðinleg orðin að það hálfa væri nóg!!! Öll lögin ömurlega súr og leiðinleg og keppendur keppast um við að vera sem minnst klæddir og með ömurlegustu dansarana!!! Og hvað kemst svo áfram, jú auðvitað, Austur Evrópa og ekkert annað! Uss, við verðum föst þarna ásamt hinum Norðurlöndunum forever!!! Svo það fyndnasta er að þessar þjóðir eru með svo ömurleg lög að þær ná ekki einu sinni að halda sér í aðalkeppninni sem leiðir til þess að þær þurfa aftur að taka þátt í súru forkeppninni og þar af leiðandi erum við föst í vítahring og hana nú!!!

En ég held ég lumi á lausninni ef við ætlum að komast upp úr forkeppninni. Við verðum bara að dulbúast sem Austur Evrópa!!!! Held að málið sé að ráða einhvern frá Serbíu eða einum af þessum löndum, syngja á Austur Evrópsku tungumáli og komast inn í mafíuna þannig muhahahahahahaha ;)
Nú eða að ríkið geti bara borgað riiiiiiiisa upphæð til að vera alltaf með svona eins og Bretland og svoleiðis hehe ;)

Alltaf er maður jafn bjartsýnn á að vinna......enda ekki annars að vænta af Íslendingi sem horfir á Júró gegnum netið í Kanada!!!

2 Comments:

  • já það er ekki gaman fyrir júróvisjon hjörtu að lenda í svona ár eftir ár......ég reyndar bjóst nú aldrei við því að við færum áfram núna en það er nú samt ekki gaman. Mér var ekki búið að detta í hug að láta ríkið bara borga fyrir að fá að vera alltaf með.....það er nú eytt í aðra eins vitleysu hérna á klakanum. Kannski að Björgólfur ætti bara að strykja íslensku þjóðina með því að kaupa fast sæti í júró....það er allavega allt í lagi að spyrja hann ;)

    By Blogger Vala, at 8:14 PM  

  • Hahaha já frábær hugmynd Vala. Björgólfur og Jón Ásgeir geta sponsorað þetta saman hehe ;)
    Snilld :)

    By Blogger Sigridur Ros, at 4:13 PM  

Post a Comment

<< Home