Hús og kaggi :)
Hmmmm....er kannski kominn tími á uppfærslu hér á síðunni, eða hvað!!! Spurning um að breyta nafni bloggsins allaveganna,svona rétt til að sýna lit ;)
Annars er bara gott að frétta af okkur. Erum að aðlagast íslenskum veruleika með tilheyrandi kaupum og gylliboðum ;) Erum búin að festa okkur við fokhelt raðhús í nýjustu Suðurbyggðinni sem er þó ekki byrjað að byggja ennþá :s eeeeen það mun vonandi rísa fljótlega og er stefnan sett á að vera komin inn fyrir jól (og það mun sko takast enda er ég ekki af Hurðarbaksætt fyrir ekki neitt mjehjehje!). Núna búum við því bara á háaloftinu í Heiðmörkinni þangað til Berghólar 23 eru klárir. Tökum þó að vísu að okkur að passa húsið hans Skara bró á morgun í tvær vikur....og tvö stykki börn úr Hafnarfirði.
Svo er kominn svaðalegur kaggi í innkeyrsluna og við auðvitað aðal hnakkar Selfossbæjar á þessum kagga.....Skoda Octavia Station!!!! Dísel bíll sem eyðir ekkert og því afar hentugur fyrir Hjalta sem keyrir á milli Self og Rvk. Við lítum eiginlega út eins og fertug hjón með þrjá krakka í farteskinu hehehe.
Hjalti er byrjaður að vinna hjá ÍAV. Byrjaði í síðustu viku og er bara sáttur og sæll við sitt. Ég er hinsvegar að dunda mér við eitt og annað þessa dagana. Finnst endalaust gaman að lesa mér til um kennslu, rannsóknir og meiri fróðleik og er nú að undirbúa mig fyrir komandi vetur....nú verður sko tekið á því og öllu tjaldað hehe. Ég mun sem sagt kenna á mínum gamla vinnustað. Fæ að vísu nýjan bekk, tek við 1.bekk og sinni svo sérkennslu með því. Verður nú gaman að hitta krílin mín aftur en þau munu vera í 5.bekk á komandi hausti. Verð nú að viðurkenna að ég á nú voðalega mikið í þeim og mér þykir ósköp vænt um þau öll. Þessir krakkar munu skipa sérstakan sess í hjarta mínu, það er sko alveg á hreinu. Mínir fyrstu nemendur, held að maður gleymi þeim nú aldrei :) En það verður líka gaman að kynnast nýjum krökkum og gera ýmislegt skemmtilegt með þeim.
Í sumar verður mikið að gera í social lífinu enda veislur og fjör á hverju horni. Hef verið að taka mig á í skokkinu, reyni að hlaupa soldið....um að gera að hrista afturendann aðeins framan í íbúana, stilla svo bara græjurnar í botn og þá fær mann ekkert stöðvað. Jafnast ekkert á við að hlaupa með góða músik í eyrunum, Bonnie Tyler "I need a hero" og Tina Turner segir mér á ég sé einfaldlega best >"You'r simply the best vúúúú" jafnast ekkert á við það og ég hleyp í takt við kellurnar :) Maður verður víst að halda sér í formi svo maður geti nú étið á sig gat í öllum þessum veisluhöldum sem framundan eru. Brúðkaup næstu tvær helgar og svo endalaus afmæli og fleiri boð. Svo er nú planið hjá mér að skella mér til Egilsstaða og líta aðeins framan í brósa minn þar og hans familíu og skella sér svo jafnvel í stólinn hjá tannsanum.
Og svo er rúsínan í pylsuendanum í sumar.....Spánn 28.júli!!! Jebbs, tengdamamma verður fimmtug í september og í stað veislu býður hún allri fjölskyldunni til Spánar...mmmmm ekki fúlsar maður við slíku gylliboði og við erum bara farin að hlakka til að sleikja sólina.
Sem sagt nóg að gera hjá Siggu og Hjalta sem eru ekki lengur í Kanada nema þá aðeins í huganum :)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home