Sigga Rós og Hjalti

Friday, June 08, 2007

Komin heim!

Þá er dvölinni í Kanada lokið og við bara komin heim með allt okkar drasl...eða svona næstum því. Lentum í gærmorgun klukkan 6:30 og á vellinum beið Díana mín og hún Karen Helga eftir okkur. Brunuðum í Hafnarfjörð til að knúsa litlu rósina mína og litla Emil í Kattholti, sem er núna kominn með kiwi klippingu sem fer vel við rebbasvipinn hans ;)
Annars gekk ferðalagið okkar rosalega vel. Eftir góðan dag í Seattle og fína keyrslu heim til Vancouver aftur, lá leiðin til Montreal. Þar fengum við að vísu ekki eins flott veður og í Vancouver, en það var rigning í tvo daga og svo hálf kalt og skýjað síðasta daginn okkar þar. En það aftraði okkur ekki frá því að hafa gaman. Við skoðuðum okkur um, fórum í Underground city og versluðum og höfðum það gott (underground city er undir borginni, fullt af verslunum, 43 km að lengd...að sjálfsögðu byggt svo Montreal búar geti forðast vetrarkuldann og verslað í hita). Svo var allt í einu bara tími til að fara heim....svo fljótt að líða allt saman. Mamma og pabbi fóru einum degi seinna frá Montreal. Þau áttu að lenda í morgun klukkan 5:30 en það var víst keyrt á vélina þeirra svo þau þurftu að fara með rútu til Ottawa í tvo tíma og fljúga svo þaðan til Íslands, eiga að lenda um klukkan 14 í dag. Það er bara vonandi að þetta eigi eftir að ganga vel.

Annars er hálf undarlegt að vera komin heim. Maður veit eiginlega ekkert hvernig maður á að vera. En það er líka gott að vera komin heim en tíminn í Kanada var góður og við munum búa að þessari lífsreynslu það sem eftir er, nú er það bara hið daglega amstur sem tekur við :)

6 Comments:

  • Velkomin heim kæru hjón. Hlakka til að sjá ykkur.
    Bkv. Sigrún

    By Blogger Sigrun, at 10:52 AM  

  • velkomin heim........hlakka til að sjá ykkur :)

    By Blogger Vala, at 5:12 PM  

  • Velkomin heim.... get vel ímyndað mér að það sé svolítið skrítið ennn gott. Hlakka til að hitta ykkur á ágúst. Þið eigið líka alltaf eftir að koma í piknikkið til okkar :) Kv. Elsa

    By Blogger Elsa, at 5:42 PM  

  • Velkomin heim og já maður kannast við þessa tilfinningu þína. Túristi í eigin heimalandi. Ennþá skrýtnara hvað hún fer fljótt samt - eins og maður hafi aldrei farið.

    guðrún

    By Anonymous Anonymous, at 8:18 PM  

  • Velkomin heim. Hlakka til ad hitta ykkur a spani eftir ruman manud. bid ad heilsa mömmu og pabba og Hugborgu og Gretari

    By Anonymous Anonymous, at 9:06 PM  

  • Velkomin heim. sjálfri fannst mér skrítið að koma heim eftir 3 vikna ferðalag í Tælandi :) svona er maður skrítinn!! En vona að ég sjái ykkur fljótlega
    kv Berglind

    By Anonymous Anonymous, at 1:01 PM  

Post a Comment

<< Home