Aðgerðin
Aðgerðin í gær gekk vel. Læknirinn hringdi í mömmu um klukkan hálf tvö. Hann náði að gera allt sem hann ætlaði að gera og gekk vel. Hann fjarlægði eyrað sem var víst mjög stórt og teygðist inn í gáttina. Einnig var eitthvað gat sem hann lagaði og svo brenndi hann fyrir taugaenda. Ég kann ekki alveg að útskýra þetta allt saman enda skilur maður ekkert mikið í þessu öllu saman, ég veit að læknirinn kallaði þetta maze aðgerð en sagði að þetta væri stærri og meiri aðgerð en maze, veit annars ekki hvað það þýðir. Læknirinn var svolítið hræddur við þetta eyra því þeir héldu að það væru blóðsegar (blóðtappar) í eyranu og þeir hefðu mjög auðveldlega getað farið af stað þegar þeir snertu eyrað, þetta væri mjög viðkvæmt. Það var því búið að tala um þann áhættuþátt að pabbi gæti fengið blóðtappa í aðgerðinni. En sem betur fer var engin blóðsegamyndun í eyranu og því auðveldara að fjarlægja það. Læknirinn sagði að ef þeir hefðu vitað það með vissu hefði aðgerðin verið gerð á sláandi hjarta sem er víst auðveldara en þeir gerðu það ekki í þessu tilviki þar sem ómun hafði sýnt blóðsegamyndun. En þetta gekk allt saman vel.
Hann var síðan fluttur á gjörgæsludeildina þar sem honum var haldið sofandi í öndunarvél og einnig var fylgst með blæðingu. Um kvöldmatarleitið var einhver blæðing sem þeir voru að vakta. Í gærkvöldi virtist hann ekki taka við storknunarlyfjum og um klukkan 23 var blæðingin það mikil að þeir vildu stoppa hana. Þeir fóru með hann aftur inn á skurðstofu, opnuðu og reyndu að sjá hvaðan blæðingin kom og blóðstilla hann. Eftir rúmlega klukkustund hringdi læknirinn og þá var hann kominn aftur inn á gjörgæsludeild. Læknirinn sem skar hann var síðan að vakta hann í nótt til að fylgjast með blæðingunni. Í morgun var það enn í lagi en honum verður haldið sofandi í öndunarvélinni eitthvað áfram og líklega alveg fram eftir degi, allaveganna þar til þeir eru öruggir með þessa blæðingu. Þetta getur víst gerst hjá fólki sem búið er að vera á blóðþynningu og læknirinn var einmitt búinn að tala um að þetta væri eitthvað sem hann gerði oft.
Það er gott að vita að hann er í góðum höndum. Besti hjartaskurðlæknirinn skar hann og hann virðist fylgjast mjög vel með pabba. Þeir eru aldeilis í erfiðu starfi þessir hjartaskurðlæknar enda bókstaflega með líf fólks í höndunum. En þetta er besti læknirinn og við mjög heppin að hann skar pabba.
En pabbi er þessa stundina stöðugur og haldið sofandi í öndunarvélinni. Við kveikjum bara á kerti og hugsum fallega til hans og biðjum fyrir honum.
Ég verð ekki róleg fyrr en hann er vaknaður og komin af gjörgæslunni. Það var mjög stressandi í gærkvöldi að vita til þess að þeir væru að fara með hann aftur inn á skurðstofu. En við bíðum bara núna og vonum að allt fari vel. Hjartað hans stendur sig samt mjög vel, það er voða gott að heyra það.
Dagurinn í gær var voða langur og erfiður en ég fór og var hjá mömmu hjá Díönu. Svo komu bræður mínir þangað. Þar gátum við beðið eftir fréttunum saman og reynt að róa hvort annað og stytta okkur stundir með spjalli. En margir voru nú þreyttir og ósofnir enda erfitt að hvíla sig þegar áhyggjur eru miklar. Það er alltaf þessi bið sem er svo erfið, því þegar maður er að bíða þá virðist tíminn bara standa í stað.
Takk fyrir allar fallegu hugsanirnar og bænirnar.
Kv. Sigga Rós

3 Comments:
Sæl Sigga Rós.
Gott að aðgerðin á pabba þínum gekk vel. Ég hef hugsað til ykkar undanfarna daga, þetta hlýtur að hafa verið erfið bið. Ég sendi ykkur öllum mínar bestu kveðjur og baráttukveðjur til pabba þíns.
Megi allar góðar vættir vera með ykkur.
Sigga Ása (bekkjarsystir pabba þíns úr Kennó)
By
Anonymous, at 10:27 AM
Gott að þetta gekk vel og vonandi verður hann fljótur að jafna sig.
Knús á ykkur öll.
By
Vala, at 12:48 PM
Elsku Sigga og öll sömul.
ég táraðist bara við að lesa þessar fregnir af honum Sigga frænda. já biðin er sko erfið þegar að maður bíður og veit ekkert.Við hugsum mikið til ykkar hérna fyrir austan og sendum ykkur baráttukveðjur.hafið það sem allra best.
bkv Edda ósk og Co.
By
Anonymous, at 9:20 PM
Post a Comment
<< Home