Sigga Rós og Hjalti

Friday, April 25, 2008

60 ára afmæli á sunnudag

Pabbi verður sextugur á sunnudaginn. Af því tilefni verða mamma og pabbi með opið hús og heitt á könnunni hér í Heiðmörkinni frá kl 14 fyrir þá sem vilja kíkja í heimsókn.

Annars gengur hans endurhæfing sinn vanagang. Rétt fyrir páska kom smá bakslag í fótinn og hendina og fyrri máttur í hægri hendi fór nánast alveg. Einnig breyttist göngulagið hans og hann nær ekki sömu færni með fótinn og áður. En málið virðist þó mjakast aðeins þessa dagana og heyrir maður mun á honum. Segir orðið nokkur orð mun skýrara en áður en auðvitað er oft mjög erfitt að skilja hann og málstolið engan veginn farið. Þetta mun bara taka heljarinnar tíma og við gerum okkur grein fyrir því enda pabbi með mál og verkstol á talsviðinu. Talmeinafræðingurinn talar um 1-2 ár. Hann stundar sína endurhæfingu daglega á Grensás, sprækur sem lækur og gefur ekkert eftir. Við vitum ekki af hverju þetta bakslag kom, allar rannsóknir sem gerðar hafa verið á honum eru eðlilegar, en okkur skilst á læknum og fleirum að svona afturför geti komið upp. Stundum kannski nokkur skref fram á við og svo tilbaka. En þetta kemur bara vonandi aftur.

Hann er allaveganna spenntur að halda upp á daginn sinn og vonast til að sjá sem flesta á sunnudaginn.

Kveðja
Sigga Rós

3 Comments:

  • Til hamingju með pabba þinn Sigga mín. Vona að þið hafið átt góðan dag með honum:)

    Kveðja frá Danmörku,

    Helga Lillian.

    By Anonymous Anonymous, at 10:19 AM  

  • Til hamingju með pabba þinn í gær Sigga mín. Vona að þið hafið öll átt góðan dag:)

    Kveðja frá Danmörku,

    Helga Lillian og Elli.

    By Anonymous Anonymous, at 10:20 AM  

  • Til haminjgu með kallinn, vonandi áttuð þið góðan dag:)
    Vonandi að allt fari að ganga fram á við aftur.
    Hlakka annars til að hitta ykkur hjónin í Germany eftir rúman mánuð.
    kv. Herdís Ólöf

    By Anonymous Anonymous, at 6:29 PM  

Post a Comment

<< Home