Skjálfti í nýju húsi!
Það hefur heldur betur verið hrist upp í okkur hér á Suðurlandinu. Stóri skjálftinn reið yfir og lagði margt í rúst en Guði sé lof fyrir að engin slys urðu á fólki, alveg ótrúlegt bara. Við Hjalti erum flutt í Berghólana og nýja húsið stóð skjálftann snilldarlega af sér og ekkert hreyfðist. Við vorum m.a.s. með stóra glerhurð sem átti eftir að setja í sturtuna upp við einn vegg og hún haggaðist ekki. Það eina sem hreyfðist aðeins var ísskápurinn en hann labbaði nokkur skref fram á við. Vorum sem betur fer ekki búin að setja neitt upp í skápa. En gott að vita til þess að húsið stendur af sér stóran skjálfta.
Ég var stödd í Nóatúni þegar skjálftinn reið yfir. Var að vísu á leið út í Heiðmörk og ætlaði að gefa kettinum og lesa blöðin þar til ég færi í jóga en ákvað á síðustu stundu að skella mér í Nóatún og versla fisk í matinn. Stóð þar í sakleysi mínu við fiskborðið þegar drunurnar og hamagangurinn byrjaði. Það eina sem ég gat gert til að halda jafnvægi var að grípa í eldri herramann sem stóð við hliðina á mér, sá ríghélt í körfuna sína og ýtti burt einhverju hillum á hjólum sem stefndu að okkur. Frekar óhugnalegt að vera staddur inni í búð og líta svo í kringum sig eftir á, allt á rúst og ekkert í hillunum lengur. Var bara fegin að hafa ekki verið að velja mér sultu eða eitthvað og fá ólífuolíu í hausinn!
Ég fór síðan beint í Heiðmörkina til að kíkja á aðstæður og ég er ekki að grínast, ég fékk nett áfall þegar ég kom að húsinu. Sprungurnar í gangstéttinni nóg til að vekja óhug hjá mér, ég opnaði hurðina og ALLT Í RÚST! Allt á hvolfi, eldhúsið svakalegt, húsgögn farin um koll og myndir af veggjum. Eldhúsið var skelfilegast, allir skápar og skúffur opnar og nánast allt farið úr þeim og niður á gólf. Glerbrotin þvílík, ísskápurinn opinn, bakaraofninn kominn af stað og uppþvottavélin laus. Á 2.hæðinni var minna brotið en húsgögn búin að færast til, skápar á hvolfi, allir fataskápar opnir (og allt út úr þeim niður á gólf), skenkir búnir að færast um 50-60 cm og ég veit ekki hvað. Merkilegt nokk að sjónvarpið og tölvan sluppu! Bílskúrinn var líka á hvolfi og geymslan alveg í rúst. Húsið sjálft þarf að meta, engar sprungur sjáanlegar inni en utan á eru 2-3, potturinn siginn og stéttinn í kring og hægt að sjá á einu horni hússins hvernig húsið hefur færst til, sést á moldinni í beðinu! Eitthvað hefur gengið á þarna, það er sko á hreinu.
Það tók okkur Hjalta klukkutíma að ná saman eftir skjálftann, ég heyrði fyrst í mömmu en hún náði loksins í mig þegar ég var á Heiðmörk, hringdi þar í heimasímann og lét svo Hjalta vita af mér. Mamma og pabbi eru sem betur fer úti á Krít núna, koma heim í kvöld. Ég var svo fegin að enginn var í húsinu þegar þetta gerðist, sérstaklega að pabbi var ekki einn heima. Það hefði verið hræðilegt. Ég var líka mjög fegin að ég ákvað að fara í Nóatún, annars hefði ég að öllum líkindum setið í eldhúsinu þegar ósköpin dundu yfir og það hefði ekki verið gaman að lenda undir öllu glerinu þar og ekkert auðvelt að komast út. Daði bróðir setti nokkrar myndir inn á bloggið sitt.
Laugardagurinn fór því í að moka út úr húsinu, lá við að maður hefði viljað ná sér í skóflu og hjólbörur. En við byrjuðum kl 11 um morgun, ég og Hjalti og svo komu Daði og Magga og svo kom Díana um kl 18. Við vorum að til kl. 20 og þá áttum við skúrinn eftir. Við tókum glerbrotin, settum í kassa (fylltum 3 stóra pappakassa og þurftum að taka allt úr eldhússkápum og skúffum og þvo og þurrka því það var lítið og fínt glerryk allstaðar. Þrifum öll hnífapör og hentum opnum umbúðum af mat því það fóru glerbrot um allt. Sagði mömmu að hún hefði nú heldur betur grætt eina feita vorhreingerningu á þessum skjálfta hehe. Í gær renndum við svo yfir aftur því enn var fínt glerryk á gólfinu, ryksuguðum og skúruðum okkur út og Hjalti græjaði bílskúrinn á meðan ég skúraði. Nú er sem sagt allt orðið hreint fyrir mömmu og pabba, enda mikið auðveldara að koma heim í húsið núna :) En skáparnir svolítið hlægilegir....t.d. var eitt glas eftir í einum stórum skáp þar sem mamma er ábyggilega með 40-50 glös!!! Þannig að það er svona svolítið tómlegt um að litast. En svona er þetta bara, engin slasaðist og það er fyrir öllu.
Við Hjalti erum síðan að fara út á föstudaginn. Ætlum að fara í 10 daga ferð til Þýskalands. Byrjum á að heimsækja Elsu og Nonna í Lux, förum svo og heimsækjum Mundu ömmusystur Hjalta í Þýskalandi og svo endum við í Berlín þaðan sem við fljúgum heim. Held að við bíðum bara með að setja stellið í skápana þar til eftir að við komum heim, mesta skjálftahrinan ætti að vera liðin hjá þá.
Annars hafa mamma og pabbi haft það svakalega gott í fríinu sínu á Krít enda kærkomið frí fyrir þau bæði. Við fengum skýringu á afturför pabba rétt áður en þau fóru út. Þá kom það loksins í ljós. Pabbi fór í MRI myndatöku og þar kom í ljós að nýr blóðtappi hafði farið af stað, einhver lítill tappi eða tappar sem koma úr gamla tappanum og fóru þessir á hreyfisvæði en engin málsvæði. Þess vegna missti pabbi máttinn í hendinni og aðeins í fætinum. Við vorum nú frekar bitur og örg út af þessu, sérstaklega þar sem hann er undir eftirliti lækna á hverjum degi. Við tókum nefnilega vel eftir þessari afturför og pabbi líka, fann að hann vaknaði einn daginn og var með minni mátt í hendi og fæti, hann var líka óvenju þreyttur þessa daga á eftir og svaf mjög mikið (eins og hann gerði eftir slagið stóra). Þegar við nefndum þetta við læknana hans og teymið hans, höfðu þeir jú tekið eftir þessu en töluðu bara um að líklega væri þetta ofþjálfun og vildu lítið gera úr þessu. Þetta var fyrir páska, og svo kemur þetta í ljós núna, þá verður maður aðeins pirraður og fúll. Sérstaklega þegar talað er um ofþjálfun og maðurinn er ekkert að gera neitt annað en venjulega, maður sem er vanur þjálfun og veit alveg hvernig ofþjálfun er. En svona er þetta bara. Líklegt er að hann geti fengið máttinn aftur líkt og síðast og talað er um miklar framfarir í málinu. Þannig að við vonum bara það besta og reynum að horfa fram á veginn. Hann er með frábæran talmeinafræðing sem gefur ekkert eftir, hún er bara æðisleg, fór í leyfi þarna í smá tíma en svo fékk hann hana aftur og við finnum vel að þegar hún kom aftur þá fór miklu meira að gerast. Enda massív þjálfun á kallinum alla daga.
En þau koma í kvöld, veit að þeim var aðeins órótt út af skjálftanum og svona, hugsa um húsið og hvernig allt lítur út. En búin að hafa það ofsa gott úti, heiðskýrt og sól upp á hvern dag og góður hiti.
Nú vonum við bara að þessum skjálftum fari að linna svo lífið komist í eðlilegt horf :)

3 Comments:
Óskið kallinum innilega til hamingju með árin 60, hann ber þau vel svo ekki sé meira sagt. Ég var feginn að vera ekki á landinu þegar sá stóri kom, hjá systur minni er svipað og þið lýsið en enginn slasaðist, það er fyrir öllu.
By
Anonymous, at 9:05 AM
Góða skemmtun í útlandinu. Vonum bara hið besta með framhaldið í skjálftvirkni landsins, aldeilis nógu mikið sem fólk er búið að tapa nú þegar.
Berglind
By
Anonymous, at 4:07 AM
Til hamingju med pabba gamla, vona að næstu 60 árin verða ljúfari við hann en síðasta árið! Gott að heyra að skjálftinn fór ekki of illa með ykkur og gott að vita af því að þið séuð í sterku húsi.Frábært hjá ykkur að drífa ykkur út, eigið pottétt ekki eftir að sakna eftirskjálftanna.Heyri í þér þegar þið komið úr fríinu, hafið það sem best og bið að heilsa elsu og nonna. Kveðja úr sólinni, Kolbrún
By
Anonymous, at 6:23 PM
Post a Comment
<< Home