Sigga Rós og Hjalti

Monday, June 30, 2008

Hjartaaðgerð framundan

Pabbi er búinn að vera í rannsóknum undanfarið. Talið var að það væri ein stór æð í höfðinu á honum sem í væru miklar þrengingar og læknirinn hans mjög hrædd um þessa æð og hvað myndi gerast ef hún myndi lokast alveg. Hann er búinn að fara í tvær myndatökur, þar á meðal svona MRI myndatöku og í morgun fór hann í vélindaómun í þeim tilgangi að rannsaka hjartað. Það eru sem sagt aðrar niðurstöður núna. Allar hans æðar eru hreinar og fínar, allar hálsæðar og æðar í höfðinu. En í dag kom í ljós að hann er með einhvern poka við eina gáttina í hjartanu. Þessi poki er mjög stór og safnar hann í sig blóði. Það er því nánast víst að áfallið sem kom fyrir 3 mánuðum (afturförin) og stóra áfallið komu vegna þessa poka því það myndast blóðkögglar sem síðan fara af stað. Þetta er að öllum líkindum einhvers konar hjartagalli, líklega meðfætt. Í dag var pabbi sendur úr þessari ómun í sjúkrabíl á Grensás. Búið er að leggja hann inn þar, þar sem talið var að betra væri að liggja á Grensás fremur en hjartadeildinni því erillinn er minni á Grensás. En pabbi má ekkert hreyfa sig. Hann er núna algjörlega rúmfastur og má aðeins stíga fram úr til þess að fara á klósettið. Hann má ekki einu sinni fara fram úr og borða í matsalnum, algjörlega rúmfastur. Hjartalæknirinn búinn að leggja bann við öllu, hann má ekki einu sinni lesa eitthvað spennandi. Hann var sendur í sjúkrabíl eftir ómunina því læknirinn taldi of áhættusamt að hann færi í bílnum hjá mömmu, meira labb og þess háttar. Það má því segja að þessi poki við hjartað sé tikkandi tímasprengja. Það á eftir að tala við svæfingarlækninn en nú er staðan sem sagt sú að pabbi þarf að fara í hjartaaðgerð þar sem þessi poki verður fjarlægður og eitthvað gert í sambandi við gáttaflöktið sem hann er með, brennt fyrir eitthvað. Þetta mun þá fyrirbyggja frekari áföll. Við vitum ekki hvenær aðgerðin verður en að öllum líkindum verður hún fljótlega....varla er hægt að láta manninn liggja í margar vikur og stara upp í loft!
Pabbi má sig sem sagt hvergi hreyfa, hann sem er búinn að vera á fullu síðustu daga. Um daginn sló hann garðinn (með sláttuvélinni sinni sem er ekki með drifi!), hann er búinn að fara í sund, keyra um bæinn og síðast en ekki síst æsa sig þvílíkt yfir fótboltanum! Í rauninni hefði hann alls ekki mátt horfa á leikinn í gær....alltof mikil spenna. Hann er í rauninni búinn að vera í lífshættu í því sem hann er að gera, skelfilegt að hugsa til þess. Þetta er nú ekki fyrir hann pabba, að liggja alveg kyrr og ekkert að gera. Auðvitað er alltaf áhætta sem fylgir svona aðgerðum en það var engin spurning hjá pabba og mömmu, þau vilja aðgerðina frekar en að hafa svona tímasprengju yfir sér.

Þetta er nú svolítið sjokk fyrir okkur og innra með manni bærist heilmikill ótti og kvíði en líka mikil vonbrigði og reiði. Auðvitað er gott að vita núna hvað olli þessu og fá þessari óvissu um æðarnar í höfðinu eytt. En ég leyni því ekki að við erum auðvitað vonsvikin að þessi niðurstaða komi svona seint í ferlinu. Við systkinin spyrjum auðvitað í reiði bíddu af hverju var þessi ómun ekki gerð strax og af hverju þessi langi tími í allt saman? Maðurinn búinn að djöflast áfram í endurhæfingu sem í rauninni hefði getað kostað hann lífið! Og enn læðist að manni efinn, af hverju var ekki búið að skoða þetta áður en hann fékk stóra áfallið, hann var jú nýbúinn að vera hjá hjartalækni fyrir það. Af hverju tekur það marga mánuði að komast að einhverju svona? En það þýðir ekki argast út í loftið, það hjálpar lítið núna en stundum eru hlutir bara svo ferlega svekkjandi og reiðin tekur völdin. En þetta er allaveganna komið á hreint núna, loksins. Við vitum hvað er að og hvað hægt er að gera, það er skýrt mál.

Framundan er því hjartaaðgerð hjá pabba. Hann liggur núna á Grensás í algerri hvíld. Eins og ég sagði þá vitum við ekkert hvenær aðgerðin verður framkvæmd en að öllum líkindum verður það mjög fljótlega. Við vonum bara að allt fari vel. Nóg er nú búið að ganga á.

Kv. SRS

3 Comments:

  • Hugsa til ykkar.
    En hvað er eiginlega málið með þessa lækna, skil vel að þið séuð svekt út í þá. Eins gott að þeir fundu þennan poka núna en ekki seinna. Úfff

    Knús og kram
    Elsa

    By Blogger Elsa, at 8:05 AM  

  • Svakalegar fréttir. Vonandi fer hann í þessa aðgerð sem fyrst. Hugsa til ykkar.
    kveðja Sóley

    By Anonymous Anonymous, at 10:06 AM  

  • Ójá skelfilegt að þetta hafi ekki komið í ljós fyrr.

    Samt ég fann fyrir létti fyrir ykkar hönd að ástæðan sé komin á hreint. Raunveruleg ástæða sem í þokkabót er hægt að laga.

    Læknarnir hafa örugglega blekkst af því hvað pabbi þinn var öflugur og líkamlega hraustur, þótt það sé engin afsökun.

    Ég er ofvirkur internet fíkill og les allan fjandann á netinu.. Ótrúlegt að í morgun var í inn á tveimur síðum sem tengjast þessu..
    www.hjartalif.is og www.hjarta.is
    Samkvæmt skilaboðum á þessum síðum munt þú hér eftir flokkast sem Hjartavinur. Það finnst mér fallegur titill.

    Gangi ykkur vel..og vonandi brjálast pabbi þinn ekki á hvíldinni ..

    kv.
    guðrún davíðs

    By Anonymous Anonymous, at 3:23 PM  

Post a Comment

<< Home