Löng bið
Það virðist ætla að vera ansi löng bið eftir hjartaaðgerðinni. Í gær var okkur tjáð að það líti út fyrir að pabbi komist ekki í aðgerðina í þessari viku. Ætla að reyna fyrir 16. júlí!!! Alveg ótrúlegt hvað þetta er langt. Pabbi er enn í banni við að hreyfa sig. Nú er búið að taka hann af blóðþynningu svo hann sé tilbúinn í aðgerðina þegar loksins kemur að henni. Við erum öll skítstressuð yfir þessu. Vitum að þetta eyra er lífshættulegt og annar blóðtappi gæti myndast hvenær sem er. Pabbi er heldur ekki mjög ánægður með sig núna, finnst mátturinn í hendi og fæti vera eitthvað að minnka. Þær á Grensás hringdu aftur í gær á Hjartadeildina til að þrýsta á þetta. Þetta er nefnilega ekki nógu gott og maður verður auðvitað sérstaklega áhyggjufullur þegar máttur hans minnkar því við vitum nákvæmlega hvað það þýðir.
Þessi bið og óvissa er mjög slæmt. Pabbi er orðinn dauðleiður á að liggja og gera ekki neitt. Dagarnir verða svo lengi að líða og tíminn virðist standa í stað, sérstaklega þegar verið er að bíða eftir einhverju svona. Nú er einhver samnýting í gangi á Grensás, búið að sameina 2. og 3. hæðina og nú liggja allir á 2.hæðinni. Pabbi er í herbergi með öðrum. Það er líka erfitt að þurfa alltaf að vera með öðrum í herbergi og þurfa að taka tillit til þess aðila. Í nýja herberginu hans pabba er sjónvarp en ekki með dvd spilara svo hann var mjög svekktur. Hann hefur nefnilega helst verið að horfa á sjónvarp og dvd svona þegar hann liggur. Daði bróðir ætlaði nú að redda honum gamalli fartölvu frá sér sem hann getur horft á myndir í. Það drepur þó tímann eitthvað.
Ég er bara ekki alveg að sætta mig við þessa bið. Nóg finnst mér pabbi búinn að bíða og ganga í gegnum. Finnst kominn tími á það að þessir læknar geri nú eitthvað almennilegt í hans málum, nú loksins þegar þeir komast að því hvað hrjáir hann. Vorum bara að vonast eftir aðgerð í vikunni, okkur verður svo létt þegar búið verður að fjarlægja þessa lífshættulegu tímasprengju sem hann gengur um með í brjóstinu.

4 Comments:
This comment has been removed by the author.
By
Sigrun, at 1:40 PM
Hugsa til ykkar og vona að biðin fari nú að styttast.
Kærar kveðjur
Sigrún Ýr
By
Anonymous, at 1:41 PM
gott að hjartaþræðingin gekk vel, ég vona að aðgerðin gangi líka vel og að biðin eftir henni verði ekki mikið lengri,
kær kveðja,
Brynja
By
Brynja, at 10:37 AM
Vonandi gengur þetta hratt fyrir sig, ömurlegt að bíða svona!
Kveðja Vala
By
Vala, at 11:37 AM
Post a Comment
<< Home