Enn á gjörgæslu
Nóttin hjá pabba var víst mjög erfið. Það er svo mikil vökvasöfnun í líkamanum, mikill vökvi sem ekki næst að losa. Þeir voru því aðeins með áhyggjur af því í morgun, líka af því að honum leið illa í nótt. Hann er því enn á gjörgæslunni og verður haldið þar þar til allt er orðið stöðugt. Teknar eru lungnamyndir ofl mjög reglulega og vel fylgst með þessari vökvasöfnun. Þetta er eitthvað sem getur gerst sögðu læknarnir sérstaklega í ljósi þess að aðgerðin sem var framkvæmd var með þeim stærstu sem gerðar eru. Læknarnir eru rólegir en fylgjast mjög vel með þessu öllu. Pabbi þurfti ekki að fara í öndunarvélina aftur en hann er með súrefnisgrímu yfir sér til að létta á önduninni. Mamma fær að vera hjá honum núna. Við getum því búist við að hann verði á gjörgæslunni allaveganna til morguns.
Vonum bara að hann nái sér vel og verði fljótt orðinn stöðugur.
Vonum bara að hann nái sér vel og verði fljótt orðinn stöðugur.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home