Gengur vel
Pabbi er vaknaður eftir aðgerðina. Var að vakna núna seinnipartinn og fékk verkjalyf. Hjúkkurnar töluðu um að hann gæti verið með tvöfalda verki því hann var opnaður tvisvar. Fólk er með verki í sárinu eftir svona aðgerðir. Pabbi var nú fyrst búinn að segja nei við verkjalyfjum (já, alltaf sama harkan!) en fékk svo verkjalyf. Mamma var komin til hans og fær að vera hjá honum. Hann er enn á gjörgæsludeildinni og verður þar í nótt. Honum var haldið í öndunarvélinni í dag og eftir að hann vaknaði, aðallega til að hvíla álagið á hjartað.
Hann er laus úr vélinni núna og var að hósta og gera öndunaræfingar til að ná upp slími og þess háttar. Mjög mikilvægt að fólk geri öndunaræfingar til að forða lungum frá sýkingum og svoleiðis. En það gekk vel hjá honum og hann reyndi m.a.s. að setjast upp. Hjartað vinnur vel, hann er líka með sterk lungu enda maður í flottu formi.
Í nótt verður hann því á gjörgæslunni en verður svo líklega fluttur á Hjartadeildina á morgun til að jafna sig. Það er fylgst mjög vel með öllu og líklega hafa þeir náð að stöðva blæðinguna í gærkvöldi.

2 Comments:
Frábært að heyra hvað gengur vel. Bið að heilsa KV. Sóley
By
Anonymous, at 9:31 AM
Elsku nafna
Takk fyrir að skrifa og halda öllum upplýstum. Við erum mörg sem hugsum til ykkar og biðjum fyrir velferð brósa og ykkar. Sjáumst sem fyrst, knús knús Sigríður frænka
By
Anonymous, at 10:03 AM
Post a Comment
<< Home