Sigga Rós og Hjalti

Saturday, September 09, 2006

Skólalíf

Grill hjá Chris og Kym í gærkvöldi, mjög gott og gaman. Farið var í pictionary með stóru blaði upp á vegg tilheyrandi fjöri og látum. Takk fyrir okkur Chris....ég veit þú lest þetta hehe :)

Skólinn byrjaði hjá okkur á þriðjudaginn og er brjálað að gera strax eftir fyrstu vikuna. Já, sælan tekur fljótt enda!
Ég er núna skráð í mjög fjölbreytta kúrsa. Er að taka eitt námskeið um svona gifted and highly able learners, eitt námskeið um hegðunarerfðileika og svo eitt námskeið sem heitir Human development, learning og culture! Veit nú ekki hvernig þetta síðastnefnda leggst í mig....lítur út fyrir að vera svona heimspekilegur-umræðubrjálæðistími! Meirihluti nemendanna eru doktorsnemar sem ætla í counselling psychology og fólk sem er að taka seinni eða þriðju mastersgráðuna (er ekki í lagi með þetta lið!!!!). Enginn þarna úr sérkennsludeildinni minni! Það er nefnilega svolítið undarleg þessi deildarskipting hjá mér. Ég er sem sagt í deild sem heitir Educational and Counselling Psychology and Special Education. Svo er líka deild sem heitir Human development, Culture and Learning. Kúrsarnir eru svona fyrir báðar þessar deildir og því lendir maður mjög oft í tímum með verðandi sálfræðingum eða þessu Human Development fólki. Mjög skrýtið! Ekki veit ég nú af hverju sérkennslufræðin falla inn í sama hóp og sálfræðingar.........spurning hvort sé ekki bara ætlast til þess að maður taki nemendur í gegn á sálfræðinni hahahahahaha (sorry mjög lélegur brandari!) Í deildinni minni eru ekkert rosalega margir nemendur enda hægt að velja mörg svið innan sérkennslunnar (blindir, einhverfa, heyrnarlausir, námserfiðleika ofl). Oft eru bara 7-10 nemendur í hverjum kúrsi sem eykur hættuna á að þeir verði barasta ekki kenndir vegna þess að lágmarkið er 10 (hef nú verið í 7 manna kúrsi samt sem áður). Ég lenti t.d. í þvi núna að einn kúrs sem ég vildi var bara cancelled á síðustu stundu og þurfti ég því annan kúrs og lenti þá í þessum human development kúrsi minum. Ég sem ætlaði í Motivation in Education, jæja verð bara að láta mér nægja mannlega þróun hehe. Hef ansi skemmtilegt heimaverkefni fyrir næsta tíma, að skilgreina hvað mér finnst vera Human Development, Learning og Culture! Allar ábendingar og tilgátur vel þegnar ;)
Hjalti er sáttur við sína kúrsa. Er t.d.í einhverjum rökræðukúrsi þar sem menn eiga að rökræða um ýmisleg verkfræðileg málefni! Veit ekki meir ;)
Jæja, nóg af romsi núna. Best að vinda sér í lestur um gifted learners ;)
Kv. Sigga Rós

2 Comments:

  • Vá ef þú sérð eitthvað sniðugt í þessum "Gifted Learners" kúrsi, þá máttu endilega skjóta því á mig. Eins gott að fá allar ráðleggingar sem bjóðast á þessum síðustu og verstu tímum :)


    Önnur spurning.
    Hvort höfum við Rockstar stóra partýið á þriðjudag eða miðvikudag?

    By Anonymous Anonymous, at 6:41 PM  

  • Er ekki bara bæði betra hahahaa. Er ekki bara stóra partýið á miðvikudag, þá koma úrslitin. Maður þarf að kjósa á þriðjudag ;) Ég sem sat sveitt síðasta þriðjudag og kaus og kaus fram á nótt.....hugsaði með mér að þetta yrði nú síðasta kosningin og það hélt mér við efnið! En greinilega var það bara næstsíðasta ;) Best að kjósa sig í svefn á þriðjudaginn hahahahaha.
    Kv.SRS

    By Blogger Sigridur Ros, at 6:52 PM  

Post a Comment

<< Home