Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, September 12, 2006

Sturtuleysi

Já eins og nafn þessarar færslu gefur til kynna þá erum við sturtulaus!!! Þegar við fluttum inn fyrir ári voru svona smá rakaskemmdir í veggnum á baðkars-sturtunni okkar. Þessar skemmdir hafa síðan magnast í þó nokkurn tíma og veggurinn bólgnað lítillega dag hvern. En síðan kom auðvitað að því að skemmdirnar urðu til þess að eitthvað lekur niður í íbúðina fyrir neðan okkur og voila.....þá birtist loks viðgerðamaður til að gera við þetta. Sem sagt reif hann í dag burt plastþil sem er yfir flísunum og timburveggurinn undir flísunum var ansi fúinn og óskemmtilegur!!! Nú er búið að sparsla í götin og á morgun kemur kallinn og setur upp plastvegginn aftur......en við megum ekki nota sturtuna í 3 daga. Baðkarið má nota en ekki sturtuna. Spurning um að fara bara að gera sér ferðir í sundlaugina góðu ;)

Myndirnar sýna hvernig sturtan okkar lítur út núna. Fallegu appelsínugulu flísarnar fá bara ekkert að njóta sín lengur hehe. Hafa eflaust þótt rosalega flottar á sínum tíma.....eeeen eins og sést á ástandi sturtunnar þá er sá tími löngu liðinn!!!!!

1 Comments:

  • æ þetta er rosa sorglegt með þessar fínu flísar:)

    By Anonymous Anonymous, at 10:42 AM  

Post a Comment

<< Home