Sigga Rós og Hjalti

Monday, October 23, 2006

Í fréttum er þetta helst!

Hmm ekki margt svo sem í fréttum. Skólinn bara á fullu spani þessa dagana svo það er nóg að gera. Fórum í afmæli til Chris á föstudagskvöld. Mjög fínt, gott að éta og svo var farið í keilu. Við skulum auðvitað taka það fram að ég fékk mun hærri stig en hann Hjalti minn muhahahahahahahha :)
Í gærkvöldi fórum við í stúdentabíóið okkar....ohh elska þetta bíó. Kostar 2 dollara miðinn og popp og kók á 3 dollara....frábært bíó :)
Í dag fór ég í leiðangur með Guðrúnu og Dagmar. Ferðinni var heitið í eina svaðalegustu föndurbúð sem ég hef á ævi minni komið í. Scrapbook áhugamanneskjur hefðu algjörlega misst sig þarna inni. Úff þvílíkt úrval af dótaríi. Ég keypti voða sniðugt dót sem ég ætla að nota í kennslunni þegar ég kem heim :) Svo var líka jóladótið mitt sem ég er að safna þarna alveg í röðum.....sem þýddi að Guðrún greyið þurfti að horfa á mig slefa feitt yfir draslinu hehe. Eftir föndurbúðina ógurlegu var haldið í Costco súpermarkaðinn og þar er nú aldeilis hægt að gera kaupin! Úff keypti meðal annars jólapappír hehe :) Mér til mikillar gleði voru jólahúsin mín til þarna í þessari verslun svo Guðrún þurfti að þola annað slef dagsins yfir tilboðspökkum af jólahúsum! Keypti nú ekki húsin, nenni ómögulega að lenda í veseni með eitthvað rafmagn þegar heim til Íslands er komið. Þeir sem mig þekkja vita að ég þoli ekki neitt mikið vesen!
Svo var endað á hinum geysivinsæla Wal Mart! Þar var að finna furðufígúrur, mennskar og ómennskar og auðvitað alveg heeeeeelling af allskyns skemmtilegum varningi! Ég get með stolti sagt að þessi ferði hafi verið árángursrík.....búin að kaupa þónokkrar jólagjafirnar mjéhjéhjé :)
Alltaf gott að byrja snemma börnin góð, ekki vill maður vera í jólastressinu ;)
Kv. frá jólakellunni

1 Comments:

  • það er svooo gaman að skoða jóladót :D ég væri sko alveg til í svona leiðangur...

    By Blogger Brynja, at 3:49 PM  

Post a Comment

<< Home