Sigga Rós og Hjalti

Monday, November 13, 2006

Upp og niður tilfinningar!

Skruppum niður í bæ í gær í smá jólagjafaleiðangur. Leiðangurinn heppnaðist nú bara prýðilega en einhver kvíða-spennuhnútur var nú í maganum enda við að bíða eftir fréttum úr prófkjörinu heima. SMS-in komi fljótlega, við að mala á fullu um fyrstu tölur inni í Sears, fólk hefur ábyggilega haldið að við værum stórskrýtin!
Við biðum síðan heima í íbúð, eftir fleiri fréttum. Get vel sagt að tilfinningaskalinn hafi sveiflast upp og niður þarna á tímabili hehe ;) En þetta fór nú vel að lokum.
Í dag er búin að vera grenjandi rigning! Kannski ekkert nýtt svo sem hehe. Guðrún og Njörður komu hundblaut í hinar miklu sunnudagskræsingar (eða þannig hehe) pizzu, vatn og ís :) Dagmar sæt að vanda, jiii verður skrýtið að hafa þau ekki nálægt sér eftir áramót....þau eru nefnilega að flytja heim í byrjun desember snökt snökt!
Jæja, best að skrifa nokkrar verkefnalínur fyrir svefninn!
Kv. SRS

2 Comments:

  • Namm namm góð pizza... :)

    By Anonymous Anonymous, at 7:52 AM  

  • mmm pizza og ís - ekki amalegar sunnudagskræsingar það...
    Hér er orðið óhuggulega kalt 6 stiga frost akkúrat núna og þessar stormviðvaranir dag eftir dag fara að verða svolítið þreyttar :( Þannig að ég vorkenni ykkur ekkert þó það sé rigning - örugglega logn og hlýtt ;)

    kveðja,
    B)

    By Blogger Brynja, at 7:51 PM  

Post a Comment

<< Home