Sigga Rós og Hjalti

Friday, November 10, 2006

Happadrætti

Yfir morgunkaffinu varð okkur litið á heimasíðu Árborgar. Sáum við þar að búið var að draga um lóðir í sveitarfélaginu......jæja ekki varð okkur kápan úr þeim klæðunum! Kannski ekki að spyrja að því, við Hjalti höfum hvorug verið mjög heppin í gegnum tíðina....frekar svona seinheppin, allaveganna í happadrætti! Já, manni finnst oft undarlegt hverjir fá lóð í svona úrdrætti.......okkur finnst náttúrulega að við hefðum frekar átt að fá lóð hmmmmmm eeeeen hverjum þykir sinn fugl fagur og bestur! Mér finnst að það ætti að breyta reglunum.....þannig að námsfólk frá Kanada sé sett í forgang og hana nú!!!
Annars er nú lítið um dýrðir hér á þessum bæ. Aðeins 3 vikur eftir af skólanum eeeeen ég á eftir að skila 5 stórum verkefnum, Hjalti að fara í próf núna á eftir og á auðvitað líka fullt af verkefnum eftir. Merkilegt hvað þarf alltaf að guða á mann verkefnum svona í lokin.....og allir á sama tíma. Jæja, það verður nú fljótt að líða.....skyndilega er kominn 10.nóvember....fjúff heimför skellur á innan tíðar :)
Ergelsiskveðjur frá ekki-lóðarhöfum!

1 Comments:

  • Já en er ekki máltækið þannig að ef maður er ekki heppin í spilum og happdrættum þá er maður heppinn í ástum. Mér sýnist svo vera með ykkur. Gangi ykkur vel á endasprettinum fyrir jólin. Kveðjur frá rokrasgatinu norður í ballarahafi. Kolla Guðj.

    By Anonymous Anonymous, at 12:21 AM  

Post a Comment

<< Home