Happy Halloween!
Já, það er víst hrekkjavaka í dag. Ætli maður muni ekki rekast á furðufígúrur og kvikindi á ferðum sínum í dag :) Bara gaman af því. Í tilefni dagsins hafa yfirnáttúruleg öfl eins og bakteríur ákveðið að ég muni í dag vera í líki kvefpestar með tilheyrandi klósettpappírsrifum! Spurning hvort ekki sé bara betra að skella sér í dollarabúðina og finna sér apabúning og ganga svo í hús og sníkja nammi! Erfitt val, erfitt val!
Annars var ég í tíma í gær og ég held að markmið skólans sé að frysta mann í hel! Það er búið að vera frekar kalt úti núna og því er engin þörf á mikilli loftkælingu inni. En ekki láta skólamenn kuldann verða til þess að þeir slökkvi á loftræstingunni. Um miðbik tímans í gær voru allir komnir í úlpurnar og það lá við að ég skellti húfunni á hausinn og færi í vettlingana! Spurning hvort frést hafi af hrörnun heilafruma í okkur og því grípa menn til þess ráðs að frysta í manni heilann! Nú ekki nema þetta sé samsæri um að ég eigi að bregða mér í líki kvefpestar í dag mjéhjéhjé!
En best að snúa sér að hinu geysiskemmtilega verkefni sem ber nafnið Connections and Constructions.....já nú er að analísera nýja þekkingu og tengja hana við fyrri þekkingu :)
Kv. Frú kvefpest ;)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home