Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, November 21, 2006

Súr texti!

Merkilegt hvað ritgerðasmíðar geta verið misjafnar. Suma daga vellur úr manni vitleysan og pikkhraðinn á methraða en aðra daga rembist maður eins og rjúpa við að kreista saman tvær setningar....ótrúlegt!
Ákvað í dag að poppa ferlið aðeins upp.....smellti á íslenskt jólaútvarp á netinu. Jafnast ekkert á við súra, íslenska jólatónlist svona til að koma sér í gírinn! Þegar ég var hinsvegar búin að heyra sama lagið óma tvisvar sinnum var ég farin að hallast að því að íslensk jólalög væru kannski ekkert sniðug! Textinn í laginu var nefnilega eitthvað á þessa leið: "og Jósef sendi sms og María var ósköp hress.....úúúúú!!!!" Hmmm þetta lag átti greinilega að vera rosa sætt og fjalla um fæðingu frelsarans. Mér finnst nú frekar súrt ef Jósef sendi sms til að tilkynna komu Jesú!!! Er orðið svona svaðalega erfitt að semja jólalög með alvöru textasmíð....thjaaa maður spyr sig!
Jæja, meira bullið í manni. Greinilegt að Guðrún hafði rétt fyrir sér í pistli dagsins.....heilinn búinn að fá nóg í bili hehe ;)

Spurning um að skella saman einni jólavísu og gefa út smáskífu hahahahaha....greinilegt að maður þarf ekki að vera góður í textasmíð...lykilatriðið er bara að kunna að ríma ;)

2 Comments:

  • ohh Sigga hvar hefur þú verið... þetta er úr jólalagi Baggalúts en þar eru á ferð grínarar sem hafa gefið út jólalag fyrir hver jól undanfarin 5 ár eða svo, mér finnst þau yfirleitt algjör snilld, finnst þér ekki frábært að færa fæðingu jesúbarnsins svona til nútímans og gera grín að þessum nýju hefðum sem eru í kringum fæðingar?

    Þeir eru með heimasíðu www.baggalutur.is og þeir eru reyndar að gefa út disk með jólalögunum fyrir þessi jól...

    By Blogger Brynja, at 11:02 AM  

  • hahahaha held að svarið sé nokkuð ljóst...hef verið í útlöndum hehe ;)

    Mér fannst þeir svo ógrínlegir við söng sinn og tók þessu sem fúlustu alvöru! Var farin að óttast um íslenska textahöfunda um stund hehe ;)

    By Blogger Sigridur Ros, at 5:18 PM  

Post a Comment

<< Home