Sunnudagsfærslan!
Verður maður ekki að viðhalda sunnudagstrendinu og koma með eitt stykki færslu svona í tilefni þess að í dag er sunnudagur!
Svo sem ekkert nýtt að gerast hérna. Rigningin byrjuð af fullum krafti og lætur ekkert stoppa sig. Já, nú er regnhlífin orðin besti vinur manns, sem og regngallinn! Október mánuður var víst óvenjugóður og ekki mjög vætusamur, þannig að nú hugsar maður með hlýju til fyrri mánaða ;)
Jólaauglýsingarnar byrjaðar á fullu....nú á maður að lesa bæklinga og kaupa ýmislegt til þess ná í rassinn á "the perfect christmas!" Við munum láta þann rass eiga sig.....auðvitað bíða hin fullkomnu jól eftir okkur á Íslandi mjehejehje.
Á sjónvarpsrásaflakki okkar í gær lentum við á hinni sívinsælu mynd Liar Liar. Komum ákkúrat inn í mitt uppáhalds atriði, þar sem Jim Carrey er með kall í vitnastúkunni og segir "you stuffed her like a turkey" og hoppar svo um með kalkúnahljóðum. Held ég fái aldrei leið á þessu atriði....nema í gær! Jú, þetta lið hérna er svo viðkæmt þannig að það var búið að taka þessa fleygu setningu út og setja eitthvað annað í staðinn.....maður fattaði ekki neitt fyrr en Carrey fór að gala eins og kalkúnn!!! Uss búið að skemma þetta fyrir manni. Maður hlær nú nett af þessari viðkvæmni. Við göntuðumst einmitt með það að ef þetta væri íslensk mynd, væri eflaust búið að drepa a.m.k einn og sýna 2-3 nektarsenukynlífsatriði! Já, svona er kúlturinn hérna.
Annars er bara skóli, skóli hjá okkur. Styttist í endann á þessu. Tímarnir klárast í lok nóvember, sem þýðir að það eru ekkert rosalega margir tímar eftir. Ég er þessa stundina að sjóða saman markmið sem ég þarf að senda supervisornum mínum. Já, hver eru markið mín með M.Ed. náminu mína hmmmmmmm! Þetta þarf víst að fara inn til kellunnar svo hún geti skráð mig í síðasta hlutann af þessu námi....Graduating seminar. Þar mun ég gera portfolio (ferilmöppu) sem mun innihalda ýmislegt góðgæti úr náminu mínu og sýna ferlið sem ég er búin að fara í gegnum. Síðan er manni skylt að kynna þetta fyrir faculty og öðrum gestum og gangandi. Jæks! En þetta munu vera lokin, sem er líka ágætt :)
Svo eitt svona smá krassandi í lokin! Við Hjalti fylgjumst náttúrulega með fréttum, kastljósi og slíku á netinu. Hjalti var að horfa á einhvern þátt og sá þar íslenska auglýsingu frá póstinum. Fín auglýsing og allt það....eeeeen sama auglýsing var í gangi hér síðasta vetur og einmitt frá einhverju flutningafyrirtæki. Sem sagt auglýsingin þar sem náunginn hefur ekkert að gera á skrifstofunni sinni nema vingsast.......sama auglýsing var hér takk fyrir! Ætli menn horfi bara á erlent sjónvarp og aðlagi nokkrar sniðugar hugmyndir að sínum. Hmmmm spurning hvort maður ætti að gerast njósnari fyrir auglýsingastofur hehehehehe.
Einn náungi var í Kastljósinu um daginn. Hann sagði: "það sem fyllti dropann var að...." hmmm veit nú ekki með hverju hann fyllir dropann sinn en yfirleitt er það dropinn sem fyllir mælinn hjá mér hehe :)
Kv. SRS

5 Comments:
úff mér finnst þig nú seig að horfa alltaf á þetta kastljós.....eða kannski bara soldið gömul ;) múhahaha
Kveðja Vala (sem verður alltaf að sjá fréttir !!)
By
Anonymous, at 10:20 AM
segi það sama og Vala... ansi sjaldan sem manni dettur í hug að horfa á kastljósið, það myndi nú alveg fylla dropann! Ég giska á að þið séuð svona illa haldin af heimþrá ;)
By
Brynja, at 12:23 PM
hehehehe já merkilegt að maður nennti aldrei að horfa á Kastljósið heima ;) Er farin að hallast að þessari heimþrár-speki hennar Brynju ;)
By
Sigridur Ros, at 9:00 PM
Mjög svo notalegt að fá sunnudagsfærsluna...svona svipað eins og þegar maður pantaði helgarmoggann í gamle dagen.
Með auglýsingarnar, þá er ég alltaf að sjá einhverjar sem væru svo sniðugar heima.. Elska t.d. Reitman tískubúðina með tískusýningarkvinnsunum (spáði mikið í þeim fyrir Holt Renfrew dæmið sko), svo finnst mér líka geðveikt sæt með símaauglýsingunum þegar þeir eru að tryggja öruggt samband og strákurinn segir "verð að fara, elska þig" oooopssss...Þögn.....og svo kemur hún á móti "Elska þig líka"...ohh geggjað...dúlli dúll..
Veit ekki af hverju, en við fylgjumst ekkert með íslensku sjónvarpi..greinilega ekki með í þessari klíku hér að ofan :)
gurrrún
By
Anonymous, at 3:58 AM
Við horfum líka oft á fréttirnar á netinu en ekki á hverjum degi, við erum greinilega ekki með nógu mikla heimþrá því að við horfum aldrei á kastljós :) En það sem fyllir stundum "dropann" hjá mér er þegar Jón Smári fær frekjukast :) hummm það er líka aldurinn hann vill ráða allt og öllu... Knúz Hanna...
By
Anonymous, at 8:56 AM
Post a Comment
<< Home