Sigga Rós og Hjalti

Monday, October 30, 2006

Í vikulok

Dagur er að kveldi kominn hér í Kanada, nú 8 tímum á eftir Íslandi. Já, tíminn breyttist í dag. Græddum klukkutíma í morgun, ferlega flott að vakna klukkan níu og segja, "nei sko, klukkan er bara 8!" Annars hefur nú lítið á okkar daga drifið að undanförnu. Ætli hápunktur vikunnar hafi ekki verið innkaupaferð í Safeway súpermarkaðinn og jú auðvitað frábært lasagna hjá Guðrúnu og Nirði í gærkvöldi :) Já, alltaf gott að koma til þeirra......vona að þau séu sama sinnis! Ég náðist víst á myndband þegar ég var að upplýsa Dagmar um hvað aparnir segja.....ehhh já, ég er yfirleitt ekki mjög dönnuð í þeim hljóðmálum hehe. Endaði svo kvöldið á að gera Guðrúnu greyið að blettatígri! Spurning um að stofna félag afspyrnu-lélegra-áhættulitunar hárgreiðslukvenna strax á morgun. Held ég geti setið stolt sem formaður í því félagi mjéhjéhjé. Já, maður lætur sig nú hafa það að vera misheppnaður um hausinn hérna úti....iss maður hittir þetta lið hérna aldrei aftur hehe. Ágætis hugsun þegar maður á slæman hárdag ;)
Kv. SRS

1 Comments:

  • Hahhahahahahaha

    Var að tékka hvort sunnudagsskrifin hefðu komið inn eins...greinilegt trend í gangi hjá ykkur ;)

    Það er allt í lagi með hárið á mér...þetta varð ekki eins augljóst eftir 15 þvotta, auk þess farið er að kólna í veðri sem reddar afsökun fyrir húfuna hehe.

    Það er yndislegt að fá ykkur í heimsókn, maður þarf að hafa svo lítið fyrir ykkur...eins og sést á videóinu þá náið þið sko að skemmta ykkur sjálf

    guðrún

    guðrún

    By Anonymous Anonymous, at 4:28 PM  

Post a Comment

<< Home