Sigga Rós og Hjalti

Wednesday, January 17, 2007

Cinnamon Toast

Ég hef komist að því að það er dásamlegt að vera krakki á leikskóla í Kanada....allaveganna með tilliti til fæðisins. Í morgun fengu litlu krúsirnar í Daycare-inu hið fínasta Cinnamon Toast! Já, hvernig gerir maður það nú hugsa margir. Mjög einfalt og sykrað!!! Ristar brauð, blandar svo saman smjöri, fullt af púðursykri og svo kanil. Þessu er síðan smurt á brauðið og étið með bestu lyst. Krakkarnir hámuðu í sig brauðið enda vel sæt morgunhressing. Inn á milli átstuna heyrðist "I loooooove cinnamon toast." Já, maður kemur sér í mjúkinn hjá litlum stubbum með sætum morgunverði. Síðan fóru þau frá borðinu, eldhress eftir orku-sykurskot og með sykurskegg i kringum munninn. Mikið held ég að restin af morgninum verði dásamleg hjá kennurunum eða þannig!!! Spurning af hverju offita er vandamál í Ameríku...hmmmm I have no idea!!!!!!!!

2 Comments:

  • tja tad er spurning hvort ad tessir kanar aettu ekki ad fara ad huga ad mataraednu. Kannksi ad tu aettir bara ad elda handa teim hollan og godan hafragraut svo tau deyji ekki ur kransaedastiflu vid fermingu...

    By Anonymous Anonymous, at 12:47 PM  

  • Það er reyndar ekki alveg rétt hjá þér guðrún, hún gerði það bara á föstudögum.

    By Anonymous Anonymous, at 11:01 AM  

Post a Comment

<< Home