Sigga Rós og Hjalti

Monday, April 02, 2007

Páskahret!

Það kom haglél í gærkvöldi!!! Já, ótrúlegt en satt þá virðist sem íslenskt páskahret fyrirfinnist líka í Vancouver borg! En það náði nú ekkert að festa sig við jörðina og í dag er fínasta veður, sól og 8 stiga hiti. Þessi vetur hér er nú búinn að vera ótrúlegur, svaka mikill snjór, svaðaleg rigning og miklir vindar sem rífa niður trén. Kannski þetta sé bara hin margumtalaða Global warming hehe!!!

Annars bankaði Pósturinn Páll upp á núna rétt áðan með gulan pakka alla leið frá Íslandi. Í pakkanum voru tvö púka-páskaegg frá Hlöðutúni :) Aldeilis flott að fá íslensk páskaegg. Ætluðum nú bara að fjárfesta í súkkulaðikanínu en það er bara ekkert sem er jafngott og íslensk páskaegg :) Takk kærlega fyrir okkur :)

Við eigum líka lambalæri í frystinum....já já, smyglvarningur síðan um jólin muhahaha ;) Einnig er þar að finna lítinn konfektkassa. Fengum nefnilega nokkra í jólagjöf, tókum því einn lítinn með okkur út og stungum í frystinn okkar. Við munum því gæða okkur á lambi, Nóa konfekti og Nóa páskeggjum á sunnudag mmmmm hlakka strax til :)

Kær kveðja frá páska púkunum :)

1 Comments:

  • umm hljómar ekki illa. Íslensk páskaegg eru best í heimi

    By Anonymous Anonymous, at 11:38 AM  

Post a Comment

<< Home