Sigga Rós og Hjalti

Monday, April 09, 2007

Það er komið vor :)

Það er greinilega komið vor hérna í Kanada. Hitastigið í kringum 10-12 gráður en því miður þá er sólin eitthvað feimin og felur sig á bakvið rigningarský. Hér eru því svokallaðar April Showers. Það er rigning í loftinu þessa dagana og spáð rigningu alveg fram yfir næstu helgi. Stundum á ég einfaldlega erfitt með að skilja hvernig jörðin hér getur tekið við öllum þessum vökva!!!!! Jæja, allt er vænt sem vel er grænt og á það við hér enda gróður grænn árið um kring.

Páskahátíðin á enda eftir svaðalegt át og tilheyrandi magaútbelgingar! Merkilegt hvað maður getur troðið sig út yfir hátíðar. Svo vaknar maður á morgnana svo glorhungraður að það er nánast eins og maður hafi ekki fengið matarbita í fimm ár!!!! Annars hefur Hjalti greyið þurft að eyða mestum tíma með honum Hormoz í verkefnavinnu og súkkulaðið því minn besti vinur þessa páskana hehehe. Ég fékk málsháttinn Af hreinu bergi kemur hreint vatn og Hjalti fékk Alla brestur eitthvað!!! En síðasta skólavikan framundan, jei jei jei heyrist því stundum frá Hjalta ;)


Þessi kom í heimsókn til okkar um daginn......spurning hvort þessi Kráka hafi fundið lykt af páskaeggjum ;)


2 Comments:

  • oh leiðinleg þessi rigning en mér sýnist gróðurinn vera kominn í gott horf eins og hér.

    By Anonymous Anonymous, at 12:45 PM  

  • 'Atti til með að skrifa inn línu til að minna á min og láta ykkur vita að hérna er ekkert vandamál með april showers heldur sól,strönd og kokteill með regnhlíf í.Ekki að kvarta yfir því. Heyrumst sem fyrst á msn og lifi refóoooooooo!!

    By Anonymous Anonymous, at 6:28 PM  

Post a Comment

<< Home