Kosningar
Jæja þá erum við búin að kjósa og atkvæðin okkar á leiðinni til Íslands! Fórum seinnipartinn á þriðjudaginn og hittum konsúlinn okkar, hana Heather Öldu. Þurftum að vísu að fara heim til hennar en hún á geggjað hús í West Vancouver. Vorum nú svo heppin að skólafélagi Hjalta keyrði okkur þangað því annars hefðum við nú þurft að sitja í strætó í tvo tíma!!! En kellan á svaðalegt hús með þvílíku útsýni yfir Stanley Park og bara alla borgina. Var hægt að sjá frá UBC campus og alla leiðina í Burnaby...váááááá! Og húsin í þessu hverfi, fjúff manni leið eins og útigangsmanni að labba þarna um!!! Þetta eru nú svakalega dýr hús í þessu hverfi, ábyggilega virði margra milljóna dollara enda flottheitin í stíl við það ;) Held nefnilega að kallinn hennar Heather eigi nú nokkrar millur hehe ;) En allaveganna kusum við og okkar dýrmætu atkvæði á leiðinni heim. Skólafélagi Hjalta sem keyrði okkur er frá Íran og honum fannst þetta mjög fyndið og merkilegt, sko það að við værum að kjósa stödd hérna í Kanada ;)
En það er sko eins gott að maður kjósi og nýti sinn lýðræðislega rétt, ekki vill maður að hver sem er komist að við stjörnvölinn í landinu ;)
Annars er maður reiður og fúll núna út í meirihluta bæjarstjórnar Árborgar eftir að hafa lesið fréttir og heyrt í foreldrunum. Með ólíkindum hvernig þetta fólk leyfir sér að valta yfir íbúana og gengur á bak loforða sinna. Maður á ekki til orð. Í fólsku minni hélt ég að þeir sem stjórnuðu bæjarfélagi ættu að hafa hagsmuni íbúa sinna í forgangi, það er augljóst að slíkt er ekki viðhaft í mínu bæjarfélagi. Mér finnst alveg hræðilegt hvernig farið er með fólkið sem býr í þessu hverfi, þeirra friðhelgi brotin og þeirra eignir rýrðar. Þið getið lesið nánar um þetta á bloggsíðu pabba http://www.sigjons.blog.is/blog/sigjons/ og á http://www.sudurland.net/frettir/nr/7727/

0 Comments:
Post a Comment
<< Home