Sigga Rós og Hjalti

Saturday, April 28, 2007

Hockey

Fórum í mat til Chris og Kym í gærkvöldi. Þar voru samankomnir nokkrir Kanadamenn til að horfa á hockey. Já, Vancouver Canucks eru komnir í playoffs um Stanley Cup. Nú eru þeir sem sagt að spila um að komast í úrslit um þennan blessaða bikar. Voru að spila við Anaheim Ducks í gærkvöldi. Þurfa, að ég best veit, að vinna 4 leiki gegn þeim og þá munu þeir keppa um bikarmeistaratitilinn. En allaveganna fór nú leikurinn í overtime en þá er það bráðabani sem gildir, hver verður fyrstur til að skora í 20 mín period. Þetta getur nú dregist á langinn, sem dæmi má nefna að leikur hjá Canucks um daginn stóð til rúmlega hálf eitt um nótt enda 4 overtime í gangi. Við fórum nú þegar overtime byrjaði, enda erum við nú ekki forfallnir hockey aðdáendur....eeeen á leið okkar í strætóskýlið voru mikil hróp og fagnaðarlæti í fólki, bílflautur þandar og menn í sigurvímu....drógum þá ályktanir að Canucks hefðu unnið ;) Nú þurfa þeir bara að vinna held ég 3 leiki í viðbót??? Eða svona það sem ég held, eins og ég segi, er enn að reyna að koma mér inn í þetta allt saman enda með eindæmum flókinn leikur!
Er nú samt komin með allt aðra sýn á hockey en áður, þetta er mjög erfið íþrótt og ég ber mikla virðingu fyrir þessum íþróttamönnum. Þetta krefst mikillar samhæfingar, þú þarft að skauta og fylgjast með öllu sem er að gerast....fjúff erfiðara en að elta einhverja tuðru út um allan völl hehe ;)

Annars hugsaði ég nú um það í gærkvöldið þegar menn voru æstir að horfa á leikinn hvað þetta yrði nú fyndið allt saman á íslensku. Sem sagt góluðu menn, in the net, c'mon skate skate.....hugsið ykkur ef maður sæti og gólaði áfram strákur skautaðu nú, já skautaðu!!!!
Ber kannski meira vott um minn úldna húmor hehe ;)

1 Comments:

  • fyndið
    Skautaðu strákur - skautaðu!!!

    Enda er ég sko á leiðinni að horfa á Blades of Glory...

    hahaaa
    gurrún

    By Anonymous Anonymous, at 11:23 AM  

Post a Comment

<< Home