Sigga Rós og Hjalti

Wednesday, April 25, 2007

Lok í nánd

Hjalti er búinn í prófum, ég búin að fá einkunnir og meðmælabréf. Þessi vika fer í að kveðja börnin sem ég er að passa eitt af öðru, kvaddi hana Söshu litlu 8 mán í gær, á föstudaginn er síðasti dagurinn minn með Elise og á mánudaginn kveð ég leikskólann og hann Jonah vin minn litla. Elise er nú sú sem ég mun sakna allra mest enda erum við búnar að vera saman á hverjum morgni síðan í janúar! Hún hefur verið að tala mikið um þetta undanfarna daga, það að ég sé nú að fara að hætta og flytja til Íslands. Spáir mikið og spekúlarer í Íslandi stelpan. Sagði t.d. um daginn "Sigga, before you started babysitting me I didn't even know about Iceland but now I know a lot!!!" Mamma hennar og hún vilja helst klóna mig, þá get ég farið heim en klóninn minn verið áfram með þeim ;) Svo var hún alveg frábær í morgun. Ég sagði við hana að ég gæti nú sent henni bréf eða póstkort frá Íslandi þegar ég væri komin þangað í sumar, mín var nú fljót að svara og sagði "yeahh Sigga, you could even send me a present!!!" Þetta var bara fyndið :)

Það er yndislegt hvað börn eru alltaf opinská og einlæg....þess vegna finnst mér nú frábært að vera yngri barna kennari, gullkorn á hverjum degi! Maður fær ekki slíkt í hvaða vinnu sem er ;)

2 Comments:

  • Oooo hvað þau eru krúttleg börnin sem þú ert að passa :-)
    Og það er sko örugglega ekki leiðinlegt að vera yngri barna kennari!!!
    Hlakka til að hitta ykkur í sumar, verðum að hafa bold og göndla reunion ;-) híhíhí
    Kv. Sandra

    By Anonymous Anonymous, at 9:33 AM  

  • Já, börn eru svo yndisleg og koma oft með gullkorn. Hlakka til að hitta þig á Fróni en við flytjum heim í kringum 1/8.
    Knúz* Hanna og co í DK

    By Blogger Hannarut, at 8:38 AM  

Post a Comment

<< Home