Sigga Rós og Hjalti

Friday, June 29, 2007

Alveg merkilegt...

...hvað það er búið að vera gott veður undanfarna daga!!! Ég man að þegar við komum heim í fyrrasumar þá var bara endalaus rigning og leiðindi og maður var feginn að komast í sólina og sumarið í Kanada. En nú er þetta bara hitabeltislíf á hverjum degi hehe :)

Andrea Rós er búin að vera hjá mér síðustu daga og við búnar að rósast svolítið saman. Skelltum okkur í sólbað, lásum Fíusól og litla rós hjólaði 5km og rak stóru skessuna áfram í skokkinu sínu.
Svo erum við náttúrulega búnar að hugsa einstaklega vel um gæludýrið hans Óskars bró!!! Hann hýsir kanínu kvikindi hér úti í garði hjá sér. Mér skilst að dætur hans hafi nú misst áhugann á kvikindu mjúka enda svona gæludýr bara áhugaverð í takmarkaðan tíma. Fyrir rúmri viku síðan þá voru nú tvö kvikindi í búrinu, ein kanína á stelpu, en kanínan var séðari en eigendurnir og slapp burt úr prísundinni einn góðviðrisdaginn þegar verið var að viðra kvikindin. Hin kanínan situr því eftir með sárt enni, eflaust blótandi að hafa ekki elt búrfélaga sinn á vit ævintýra og betri haga.
Ég vorkenni greyinu svo mikið að hún fær að éta svona 10 sinnum á dag, gómsætan arfa, salat og gulrætur. Ekki þori ég fyrir mitt litla líf að viðra hana enda vil ég ekki hafa það á sakaskránni að hafa týnt gæludýrinu. Kvikindið er því látið dúsa í búrinu sínu en fær í staðinn nóg að éta.....greyið, langar svo að komast út enda vön að fá að viðra sig örlítið. Mamma stakk upp á að ég setti hana í band og færi í göngutúr!!! Það væri nú saga til næsta bæjar ef maður sæist með kanínu í bandi, spókandi sig á Austurveginum!!! Andreu Rós leist hinsvegar vel á þessa hugmynd og sá því ekkert til fyrirstöðu að skella sér í gönguferð með kanínu!!!

Vorum annars að koma úr grilli. Loksins búin að endurheimta stóru syss....Díana mín og Karen Helga loksins komnar heim eftir 3 vikna ferð á Möltu þar sem unglingurinn var í málaskóla. Gott að fá þær loksins heim enda sáum við þær bara í nokkra daga eftir að við komum heim og þær fóru út!!!
En gott að fá þær heim og vita af þeim nálægt sér :)

Svo er það bara næsta brúðkaupsveisla á morgun, fjör, stuð og dans :)

Kanínukveðjur
SRS

1 Comments:

  • ég sé ekkert að því að þið skellið ykkur í göngutúr með kanínuna - bara mjög góð hugmynd...
    ef það er karfa á hjólinu getið þið líka tekið hana með í næsta skokkhring ;)

    By Blogger Brynja, at 5:49 PM  

Post a Comment

<< Home