Sigga Rós og Hjalti

Thursday, January 03, 2008

Nýtt ár 2008

Gleðilegt ár öllsömul og þakkir fyrir það gamla.

Með nýju ári fögnum við möguleikum á nýjum framförum, nýjum ævintýrum og nýrri reynslu. Við lítum yfir farinn veg og færum þakkir fyrir það sem áttum á árinu. Ég lít til baka og finnst mér ómetanlegt að pabbi og mamma höfðu tök á því að heimsækja okkur til Kanada í sumar. Ekki hvarflaði það að mér í sumar að um þessi áramót værum við fjölskyldan að berjast í mikilli glímu! En nýtt ár mun veita okkur ný tækifæri. Það er baráttuár framundan og ekkert verður gefið eftir. Ég er ákveðin í því að um næstu áramót mun ég skrifa hér inn að öllum okkar markmiðum var náð. Við stefnum hátt á nýju ári, tökum eitt stutt skref í einu í átt að lokamarkmiðinu.

Síðasta kvöldi ársins eyddum við öll fjölskyldan saman heima hjá Óskari og Betu. Þar var að vanda mikið fjör og læti. En pabbi stóð sig vel, fór með okkur út að skjóta og fagna nýju ári. Hann var að vísu orðinn mjög þreyttur í lok kvölds en honum fannst gaman. Pabbi átti frí í æfingum á gamlársdag en Jóndi kom og stakk í hann nálum.

Pabbi og mamma fengu æfingahjól í jólagjöf. Hjólinu stillti pabbi við kvistgluggann, þar sem hann getur hjólað og horft út til fjalla. Pabbi notar þetta hjól mjög mikið. Fór á það nánast á hverjum degi í jólafríinu. Þá er hann að hjóla í 17 mínútur, hjólar eins og venjulegur maður. Hjólar hratt og ekki létt!
Við pabbi höfum æft málið á hverjum degi, stundum 2x á dag í fríinu. Við æfum framburð, lestur og ritun. Pabbi virðist geta lesið, á erfitt með að einbeita sér að lestrinum en getur þó lesið. Hann getur ekki skrifað. Svo virðist sem ritunarþátturinn hafi eitthvað sofnað um tíma. En það verður lítið mál að vekja ritunina, líkt og hendina :) Við höfum því æft stíft síðustu daga. Ég er hörð við hann og hann hlær bara að mér. Ég sit með pennann og pota í hálsinn ef hann gerir raddað hljóð þegar hljóð á að vera óraddað og þess háttar. Ég sagði honum að nú væri mitt tækifæri á að vera kennarinn, og gefa honum ekkert eftir líkt og þegar hann kenndi mér í 8-10. bekk. Þá gaf hann ekkert eftir. Hann var alveg sammála því og skilur vel gildi þess að æfa málið vel. Hann veit að það mun taka tíma en ég vil bara trúa því að það komi eins og annað.
Ég heyri framför hjá honum. Hann er auðvitað duglegur að svara manni og reyna að segja hluti en við eigum oft erfitt með að skilja hvað hann er að segja. Hann nær að segja meiri s-hljóð, nær að mynda tvívaramælt hljóð, nær f og v hljóðum. Hann á erfitt með að mynda hljóðin sjálfur, nær að vera skýrari ef maður er beint fyrir framan hann og sýnir honum hvernig á að mynda hljóðin. En þetta tekur allt saman tíma. Mikil orka fer í þessar æfingar og sú orka mun vonandi skila sér á endanum. Við höldum bara áfram að vinna saman á fullu.

Við keyrðum pabba aftur á Grensás í gærkvöldi. Hann er ótrúlegur hann pabbi, tekur þessu öllu af svo miklu æðruleysi. Við héldum að honum þætti kannski svolítið erfitt að fara aftur inn eftir fríið en nei ekki sýnir hann okkur það. Það voru aðallega við sem áttum erfitt með að skila honum! Hann er jákvæður og svo duglegur og sterkur. Það er ekkert auðvelt að vera fílhraustur og skyndilega kippt út úr lífi sínu og þurfa að leggjast inn á sjúkrahús, sofa í sjúkrarúmum og með öðrum á herbergi! En pabbi tekur þessu bara vel. Ég veit að hann lítur ekki á sig sem sjúkling, heldur mann í endurhæfingu og þannig lít ég líka á hann. Hann er maður í endurhæfingu, ekki sjúklingur.
Það verður stutt vikan núna. Pabbi kemur aftur heim á morgun í helgarleyfið. Alltaf gott að fá hann heim.

Guð gefi ykkur öllum hamingju, gleði og hreysti á nýju ári. Þökkum allar hugsanir, bænir og góðar kveðjur á liðnu ári. Við stefnum hátt með gleði og jákvæðni í hjarta.

Kær kv.
SRS

2 Comments:

  • Gleðilegt nýtt ár eða BUON ANNO NUOVO eins og við hérna segjum það.Vá gaman að lesa það að þið hafið haft það gott um áramótin og að pabbi þinn hafi haft það huggulegt.Það þýðir ekkert annað en að hafa takmörkin há og láta ekkert undan draga og hlakka ég til að fylgjast með ykkur og framförum hans pabba þins á nýju ári. Heyri í þér fljótlega,kær nýárskveðja frá Kolbrúnu Italiu

    By Anonymous Anonymous, at 7:33 PM  

  • Gleðilegt ár og megi nýja árið færa ykkur enn lengra í markmiðum ykkar og að pabbi þinn Sigga haldi áfram að standa sig svona vel. Ég þekki pabba þinn ekki neitt en bara það sem ég þekki þig Sigga þá veit ég að hann er frábær maður. Mikið er gott að hann hafi svona marga góða í kringum sig til að hjálpa honum að ná sem allra bestum bata. Stundum spyr maður sig alls kyns spurninga um hitt og þetta, sérstaklega þegar áföllin dynja á. Ég hugsa bara hvað það er frábært að þú hafir farið út í þetta framhaldsnám og á þessum tímapunkti. Nú ert þú stór þáttur í að getað hjálpað pabba þínum að ná bata;-)
    Bestu kveðjur frá Árósum,
    Dóra Hanna og strákarnir

    By Anonymous Anonymous, at 4:24 PM  

Post a Comment

<< Home