Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, November 27, 2007

Sigur dagsins í dag

Það er augljóst hvaðan ég sæki mitt keppnisskap. Meiri keppnismann en pabba er varla hægt að finna. Hann fullur af metnaði og kappi, einbeitnin og ákveðnin skín í augum hans.
Í dag gekk pabbi 12 ferðir eftir ganginum án hækjunnar og gerði 101 hnébeygju. Við hin kiknum nú bara undan nokkrum hnébeygjum en pabbi bætir sífellt í og vill gera aðeins fleiri á hverjum degi. Þegar hann situr getur hann lyft hægra fæti örlítið upp en það er mikið afrek. Hann fer sjálfur úr hjólastólnum og í rúmið, þarf enga aðstoð við það. Hann heldur áfram að söngla og humma og segir núna já og nei-ið er orðið skýrara. Í dag æfði hann sig líka aðeins í tröppum, en það er nú vegna þess að við búum á tveimur hæðum. En ég hef fulla trú á því að það náist hjá honum. Ég æfði pabba með orðaspjöldum í dag og það gekk mjög vel. Honum finnast þær æfingar kannski ekki eins skemmtilegar en hann lætur sig hafa það og er alveg einstaklega samvinnufús nemandi. Mjög duglegur alltaf. Talmeinafræðingurinn sagði að hann væri líklega með verkstol, en þá gæti hann gleymt hlutum sem hann kunni áður. En skilningurinn er mjög góður og maður finnur að pabbi besti er þarna, kíminn, glaðvær og ákveðinn eins og alltaf þó að hann geti ekki talað við okkur.

Í dag var einnig markmiðsfundur með hjúkrunarteyminu. Sett voru stutt og skýr markmið og það er enginn efi í mér um að pabbi mun ná þeim markmiðum. Um miðjan janúar verður svo aftur markmiðsfundur.

Við höldum áfram bjartsýn og trúum á vonina og kærleikann. Takk fyrir góðar og hlýjar kveðjur.
Kv. Sigga Rós

3 Comments:

  • Mikið er nú gaman að lesa að þetta gengur svona vel. Þetta var mikið áfall fyrir svona ungann mann sem er vanur að vera alltaf á hreyfingu. Vonandi heldur bara áfram að ganga svona vel í endurhæfingunni, ég hef fulla trú á manninum:)
    kv. Herdís

    By Anonymous Anonymous, at 3:35 PM  

  • Það er frábært að lesa hvað endurhæfingin gengur vel, þetta er frábær árangur á stuttum tíma.

    Ég hugsa mikið til ykkar Sigga mín :) Heyri í þér fljótlega!

    By Blogger Brynja, at 2:34 PM  

  • Elsku Sigga og fjölskylda

    Gott að heyra að endurhæfingin gengur vel enda ekki við öðru að búast af svona miklum keppnismanni eins og pabba þínum. Alltaf svo duglegur og lífsglaður það mun hjálpa honum.

    Við hugsum til ykkar og biðjum að Guð gefi pabba þínum fulla heilsu á ný.
    Baráttukveðjur
    Lóa og Albert

    By Anonymous Anonymous, at 6:40 PM  

Post a Comment

<< Home