Sigga Rós og Hjalti

Sunday, December 09, 2007

Góð helgi

Dagur er að kveldi kominn og yndisleg helgi að baki. Pabbi fékk helgarleyfi frá Grensásdeildinni. Kom hér heim til okkar á föstudaginn um kaffileytið og þau hjónin voru að keyra af stað til Reykjavíkur. Á föstudaginn gerðust merkilegir hlutir en þá hreyfðist hægri höndin á pabba :) Hún hreyfðist þegar hann var að æfa með sjúkraþjálfaranum á Grensás. Við og allir á deildinni fögnuðum því :)

Dvölin hér heima gekk mjög vel. Ekkert mál að labba upp og niður stigana. Jóndi kom og æfði hérna heima. Þeir hafa undanfarna daga verið að æfa að sparka í bolta, labba eftir línu, labba afturábak og auðvitað gera háar hnélyftur og hnébeygjur og reyna að fá höndina til að vakna. Jóndi var einnig með nálastungumeðferð á pabba. Setti í hann nálar á fös, í gær og í dag. Hann liggur með nálarnar í 45 mín og slakar algjörlega á á meðan á því stendur.

Í gær fóru mamma og pabbi saman í heimsókn. Vinir þeirra úr saumaklúbbnum voru að borða saman. Mamma og pabbi birtust alveg óvænt í boðinu. Pabbi gekk inn og sagði Já já já og augu vinanna glenntust upp og óp og öskur heyrðust út á götu. Grátur og gleði einkenndu þennan vinafund og fannst mér stórkostlegt að sjá þetta. Hjónin stoppuðu þarna í klukkutíma og fannst þeim og vinunum þetta mjög gaman, ég er ekki frá því að vinunum hafi fundist þetta vera besta jólagjöfin í pakkaleiknum þeirra :)

Talæfingar ganga vel. Sigga talmeinafræðingurinn hans pabba lét okkur fá setningar til að æfa með honum. Það hefur gengið vel og nær hann að fylgja vel hrynjandi málsins og skynjar löng og stutt atkvæði/hljóð í orðum. Náði að segja Díana og Helgi mjög vel. Hann segir orðið já já mjög skýrt, nei-ið er að verða skýrara og nú æfum við jæja. Í gærmorgun æfðum við pabbi í 60 mín, bæði talæfingar og svo nokkrar æfingar með stafina þar sem líklegt er að lesturinn hjá pabba hafi eitthvað raskast við áfallið. Mér fannst talæfingarnar ganga mjög vel eftir nálastungumeðferðina. Það hefur vonandi áhrif á þetta allt saman :) Við höldum bara ótrauð áfram og stefnum hátt, enda ekkert annað í boði :)

Fyrir mánuði síðan, þann 8. nóvember lá pabbi á gjörgæsludeildinni og gat ekki hreyft hægri helming líkamans, ekki einu sinni tærnar, og ekkert hljóð kom frá honum, ekki einu sinni stuna. Núna gengur hann við hækju og gefur frá sér hljóð. Læknarnir gáfu okkur litlar sem engar vonir um að hann ætti eftir að ná upp hreyfifærni, já, þeir ættu að sjá kappann núna. Hann gæti nú heldur betur labbað á móti þeim og sagt Jáááááá halló!!!

Takk fyrir góðar kveðjur öllsömul. Við höldum áfram sterk og stöðug í langhlaupinu mikla :)
Bestu kveðjur Sigga Rós og fjölsk.

3 Comments:

  • Þvílík gleði vonar!
    :)

    By Blogger Unknown, at 10:19 AM  

  • Hæ hæ Sigga mín,
    Það er alveg frábært að heyra hvað gengur vel hjá pabba þínum, ekki við öðru að búast frá honum. Því allt sem hann tekur sig fyrir hendur gerir hann vel.
    Þið eruð í huga mínum, gangi ykkur rosalega vel með framhaldið.
    Hafið það sem allra best um hátíðirnar
    Kær kveðja Lóló (úr Fossnesti)

    By Anonymous Anonymous, at 2:19 PM  

  • Ég var því miður bara að frétta af þessu núna áðan! Mér dauðbrá en fylgdi hlekknum yfir á þessa síðu. Það gleður mig alveg gríðarlega að sjá að hann er að taka svona miklum framförum. Siggi á eftir að toppa þetta, ef ekki hann, þá enginn.
    Skilið kveðju frá gömlum nemanda sem fluttur er í Ameríkuna,

    Heimir Tómasson

    By Anonymous Anonymous, at 6:37 PM  

Post a Comment

<< Home