Dugnaður alla daga
Pabbi er enn duglegur og baráttumikill. Hann er farinn að ganga mikið með hækju, fer einstaka sinnum í hjólastólinn en notar hækjuna mikið. Markmiðið var að losna við stólinn fyrir jól og okkur sýnist að það markmið sé að hafast núna á nokkrum dögum.
Pabbi fékk að koma aðeins heim í gær. Hann fékk dagsleyfi frá Grensás. Mamma náði í hann um hálf tíu, þá var pabbi búinn að klæða sig í skyrtu og buxur, tilbúinn að fara heim. Það gekk mjög vel hérna heima. Pabbi gekk upp og niður stigann og tókst mjög vel. Jóndi kom til okkar og gerði æfingar með honum. Nú var pabbi að gera háar hnélyftur, halda jafnvægi á einum fæti (gerði bæði með hægri og vinstri), jafnvægisæfingar og að æfa sig í að stíga rétt í fótinn. Gekk rosalega vel hjá honum og hann gengur mjög flott. Slettir ekki fætinum til hliðar eða neitt slíkt. Hann er mjög sterkur í mjöðmunum og því nær hann svona góðum tökum á göngunni. En dagurinn var góður fyrir pabba. Við létum ekkert vita af deginum hans heima því skv læknisráði óskuðum við ekki eftir gestum þennan daginn. Mikilvægt var að hann fengi að prófa sig áfram heima og aðlagast því það getur líka verið áfall fyrir fólk að koma heim. En það má alveg heimsækja hann á Grensásdeildina. Pabbi borðaði svo kvöldmat með okkur og eftir það keyrðu hjónin saman í bæinn. Ekkert mál fyrir hann að sitja í bílnum og fara inn og út.
Á föstudaginn fór ég með pabba í taltíma hjá Siggu talmeinafræðingi. Hún útskýrði málin vel fyrir mér og sýndi mér hvernig æfingar þau eru að gera. Ég fékk líka að fylgjast með svo nú er ég betur í stakk búin til að hjálpa pabba. Nú gerum við óspart talæfingarnar, grettum okkur og fettum, lærum ný orð og bætum í orðaforðann. Pabbi er með mjög mikið málstol og því mun þáð líklega taka langan tíma að ná málinu aftur. En það mun hafast með góðri hjálp og þjálfun. Sigga tal minntist nefnilega á það að það væri greinilegt að pabbi veit hvað þjálfun snýst um og það hjálpaði mikið. Þetta er auðvitað erfitt en þetta mun hafast enda enginn jafn duglegur og pabbi. Mér finnst hann auðvitað vera bestur á deildinni :)
Pabbi er alltaf jafn ákveðinn við æfingarnar. Núna glímum við öll við stórt og mikið verkefni sem við ætlum að klára með glæsibrag. Takk fyrir allar góðu hugsanirnar og bænirnar, þær styrkja okkur í baráttunni.
Kv. Sigga Rós

1 Comments:
Frábært að sjá hversu vel gengur hjá pabba þínum Sigga mín. Baráttukveðjur frá okkur öllum.
Kveðja Vala Rún og fjölsk.
By
Vala, at 1:42 PM
Post a Comment
<< Home