Áfram er okkar kjörorð!!!
Pabbi fékk sitt annað helgarleyfi núna um helgina. Fékk að koma heim og hafa það notalegt með fjölskyldunni.
Það gengur ótrúlega vel hjá honum og hann er mjög duglegur í þessari baráttu. Hann gengur um, þráðbeinn og er nú aðeins að sleppa hækjunni. Ég er viss um að hækjan verður bráðum bara punt og minn maður fer að labba um hækjulaus. Pabbi er kominn með mátt í öxlina og brjóstvöðvana og er nú líka komin með mátt í upphandleggsvöðvann. Hann getur því hreyft hægri hönd örlítið með því að nýta axlarvöðva og upphandleggsvöðvana. Fingurna hreyfir hann ekki ennþá. En það er greinilegt að höndin er að vakna eftir langan svefn.
Hann sýnir líka framfarir í málinu og sagði talmeinafræðingurinn hans að allt hefði verið á fleygiferð núna í vikunni og mikil framför. Við æfum setningar fram og aftur og þær eru alltaf að verða betri hjá honum. Hann segir Jóndi mjög flott :) Við erum síðan að syngja með honum. Söngstöðin er hægra megin í heilanum en málið vinstra megin svo söngurinn getur örvað málið og jafnvel fundið einhverjar boðleiðir þarna á milli. T.d. nær pabbi ekki að segja nein s-hljóð en það kom aðeins þegar hann söng. Málið er það sem okkur finnst langerfiðast í öllu þessu ferli en það kemur, tekur bara lengri tíma. Hann segir allaveganna JÁ mjög vel :) "Afi er svo jákvæður, segir alltaf já já já" sagði ein lítil afastelpan.
Það er þetta mál- og verkstol sem er svo erfitt.
Jóndi kemur á hverjum degi til að þjálfa pabba. Þeir gera allskonar æfingar, ganga eftir línu, halda jafnvægi á einum fæti, halda jafnvægi með lokuð augun og svo auðvitað nálastungurnar en pabbi fékk 3xvar um helgina nálastungur. Jónda eigum við svo margt að þakka, ég veit ekki hvernig við getum þakkað honum fyrir alla sína vinnu. Jóndi og Gagga, konan hans, eru bara gersemar og yndisleg í alla staði.
María, læknirinn hans pabba, sagði að hann beitti vöðvunum ótrúlega vel. Talaði um að svona flott vöðvabeiting sæist sjaldan eftir svona mikil og stór áföll. Henni finnst hann sýna miklar framfarir, mun meira en þeir hefðu búist við. Við erum auðvitað svo stolt og ánægð með hann elsku karlinn og finnst hann vera langbestur :) Þær eru líka ánægðar með hann þarna á deildinni.
Pabbi kemur heim næsta föstudag í jólafrí og fær að vera heima fram yfir áramót. Við erum glöð og ánægð með það. Alltaf svo gott að fá hann heim í húsið. Það er auðvitað sárt að sjá pabba sinn, hrausta og sterka manninn, svona á sig kominn og geta ekki gert núna það sem hann gat áður. Mest sakna ég samtalanna okkar en ég get samt sem áður spjallað við hann, á annan hátt en spjall er það nú samt :) En það þýðir víst lítið að gráta það sem liðið er og þá hluti sem við ekki getum breytt. Nú er bara eitt orð sem við höfum á vörum okkar, það er orðið ÁFRAM! Áfram fram veginn skulum við komast. Það verður okkar áramótaheit í ár.
Það er gott að fá hann heim og leyfa honum að fá næði og rólegheit hér heima með fjölskyldunni. Við viljum jú öll vera nálægt honum og eiga stundir með honum. Það er mjög gott að heimsækja hann á Grensás og hvetjum við ykkur til að nýta ykkur það. Tíminn á milli kl 17-21 er fínn tími, þá er hann búinn með æfingaprógram dagsins.
Takk fyrir allar góðar kveðjur og hugsanir. Þær ylja okkur öllum um hjartarætur og veita styrk í erfiðu verkefni.

6 Comments:
Vá hvað þú ert dugleg að hjálpa pabba þínum. Ekki það að ég myndi ekki gera það sama fyrir pabba minn, en svona er bara alls ekki sjálfgefið og þú átt hrós skilið!
Sendi baráttukveðjur til ykkar og ég hef fulla trú á að hann komi til með að ná öllum settum markmiðum. Hljómar einmitt eins og svoleiðis kall :)
By
Anonymous, at 6:48 PM
Elsku Sigga og fjölskylda
Frábært að heyra að það gengur svona vel og að þið séuð svona jákvæð þrátt fyrir þetta mikla áfall. Við sendum ykkur innilegar jóla og baráttukveðjur.
Lóa og Albert
By
Anonymous, at 11:47 PM
Elsku Sigga Rós og fjölskylda
Ég er alltaf að hugsa til ykkar og mikið er gott að geta fylgst með og séð hvað það gengur vel.
Greinilegt hvaðan þú færð þetta gríðalega keppnisskap :)
Bkv. Sigrún Ýr
By
Anonymous, at 2:48 PM
Baráttukveðjur frá okkur tveim í Vestmannaeyjum, Sigurður veit hverjar við erum, við ætlum að vera á ferðinni í jan eða feb kíkjum þá. Gleðileg jól til ykkar allra.
By
Anonymous, at 4:03 PM
Var að kíkja á síðuna þína Sigga mín eftir langt hlé og var því miður að lesa alla baráttusöguna ykkar. Ekkert smá mikið áfall en pabbi þinn og þið öll eruð algjörar hetjur. Okkar bestu baráttukveðjur og jólakveðjur frá Árósum, Dóra Hanna og fjölskylda.
By
Anonymous, at 5:15 PM
Gott að geta fylgst með ykkur hér á blogginu þínu Sigga. Frábært að heyra hvað gengur vel þó að auðvitað er þetta mjög erfitt. Við þurfum að fara að hittast, helst fyrir jól. Hafið það gott og gangi ykkur Áfram vel með æfingarnar, þú ert rosalega dugleg að hjálpa honum svona mikið. Bið að heilsa pabba þinum og skilaði kveðju til mömmu þinnar.
Kv. Hugborg og Grétar
By
Anonymous, at 11:53 AM
Post a Comment
<< Home