Framfarir dagsins
Í gær og í dag gekk pabbi með hækjuna fram í matsal. Hann gengur vel, rásar ekkert til hliðar, heldur jafnvægi og labbar fremur hratt bara! Hann gerði æfingar með Jónda áðan, þar á meðal 150 hnébeygjur. Já, það er alltaf bætt í og meira til. Gagga kom með Jónda og nuddaði pabba í lok æfinganna. Ég æfði orðaforðaæfingar með honum og á morgun ætla ég að hitta talmeinafræðinginn hans, hana Siggu tal, og fá að sitja einn tíma. Þá get ég séð hvað hún er að gera og hún leiðbeint mér um það sem ég get gert til að hjálpa pabba.
Jóndi kom í gær með svona lítil rafstuðstæki sem við setjum á hægri hendina á honum til að virkja hana aðeins. Jóndi er algjör guðsgjöf fyrir okkur, en hann kemur á hverjum degi eftir vinnu til að vinna með pabba. Við erum svo þakklát fyrir það.
Takk fyrir allar góðu kveðjurnar, símtölin og skilaboðin. Þau eru ómetanleg á svona stundum. Þetta er erfitt en að lokum mun þetta hafast. Ég held áfram að biðja fyrir elsku pabba og hugsa jákvætt í átt að lokamarkinu.
Kv. Sigga Rós

4 Comments:
Frábært að heyra þetta,við vissum að hann er þrautseigur og með mikið keppnisskap,og ef einhver getur þetta þá er það hann með ykkar góðu hjálp.
Við erum öll með ykkur í huganum.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Valdi og Tobba
By
Anonymous, at 9:49 PM
Frábært hjá ykkur öllum og auðvitað sérstaklega pabba þínum.
Þið standið ykkur vel..Maður er nú bara gáttaður á þessum fjölda hnébeygja....Vá.
Gott að geta fylgst með, þó það sé úr fjarska og gaman að heyra um framfarir.
kveðja,
guðrún davíðs
By
Unknown, at 10:13 AM
Nú kemur Hurðabaksþrjóskan sér að góðu...
Langaði bara að senda ykkur baráttukveðjur, það var mikið sjokk að heyra af þessu, en þið standið ykkur eins og hetjur.
Gangi ykkur vel áfram,
kv. Helga Guðm. frænka og co
By
Anonymous, at 1:36 PM
Frábærar fréttir og kemur ekki að óvart að pabbi þinn sé að gera góða hluti og styrkja sig á hverjum degi, enda Jóns!Þið eruð að standa ykkur rosalega vel og ég veit að þið eigið eftir að komast í gegnum þetta sterkari og nánari en áður.Fer í kirkjuna á eftir og kveikji á kerti fyrir pabba þinn og ykkur eins og ég lofaði þér. Fjölskyldan mín sendir baráttukveðjur.Kv Kolbrún
By
Anonymous, at 12:55 PM
Post a Comment
<< Home