Áfram gjörgæsla
Í dag, laugardag, var pabbi enn á gjörgæslu. Þetta er svolítið erfitt hjá honum. Þessi vökvasöfnun er mikil en honum eru gefin lyf til að losa vökvann. Hann á erfitt með að anda og er því með stóra súrefnisgrímu yfir andlitinu. Hann verður svolítið þreyttur að vera með hana og þá setja hjúkkurnar stundum á hann minni grímu, svona maska en það léttir aðeins á honum.
Ég fór og hitti hann í dag, voða erfitt að sjá honum líða svona illa og með stóran skurð á bringunni. Svona aðgerðir eru sko ekkert grín og erfitt að ná sér eftir þær.
Mér finnst nú nóg hafa verið lagt á elsku pabba minn, vona bara að honum fari nú að líða aðeins betur.
Hann verður á gjörgæslunni í nótt og líklega eitthvað á morgun. Hann fer ekkert á hjartadeildina fyrr en hann er orðinn stöðugur. Það er yndislegt fólk sem vinnur þarna á gjörgæslunni og vaktar hann alveg. Þær eru svo góðar við hann og yndislegar hjúkkurnar og gera allt sem þær geta til að láta honum líða betur. Það er svo gott að vita af því, sérstaklega þegar maður veit að hann er kvalinn og líður illa.
Bið ykkur bara um að hugsa áfram fallega til hans og senda góða strauma.

1 Comments:
Æ elsku Sigga mín, það er aldeilis mikið á ykkur lagt. Vonandi fer pabba þínum að líða betur og ástandið að verða stöðugra :-)
Farðu nú vel með þig og bumbubúann
Bestu kveðjur til ykkar
Sandra Guðmundsd. og co.
By
Anonymous, at 6:51 PM
Post a Comment
<< Home