Sigga Rós og Hjalti

Thursday, January 18, 2007

Pósturinn Páll!

Merkilegt hvað við fáum mikið af pósti hérna úti.....þó er hann yfirleitt ekki til okkar!!! Við fáum nú ekki póst nema einstaka reikninga en Gagandeep Shanga er afskaplega vinsæl eða vinsæll og fær þvílíkt mikið af pósti. Við erum nú búin að komast að ýmsu um Gagandeep Shanga í gegnum póstinn. Þessi manneskja er t.d. Doktor, er tannlæknir og fór í háskóla í Ontario! Veit þó ekki hvort þetta er karl eða kona en það er líka önnur Shanga persóna og það er Mak Shanga. Líklegast hafa þessi Shanga hjón búið hér í íbúðinni á undan okkur. Á undan þeim var ábyggilega maður að nafni Ibsen, en póstur á hann kom einmitt til okkar fyrsta árið hér úti!
Ooooooog viti menn, í þeim töluðu orðum kemur pósturinn til okkar og hver fær póst nema Mak Shanga!!!! Greinilega vinsælli en við!

Annars lenti ég nú einu sinni í því að póstmaðurinn bankaði á dyrnar og stóð fyrir utan með pakka. ,,Jibbí, pakki til okkar, en gaman" hugsaði ég en vissi bara alls ekki frá hverjum hann var því ég átti ekki von á neinu. Samt alltaf gaman að fá pakka og hélt ég að einhver heima væri að senda óvænta sendingu til okkar. Að sjálfsögðu tók ég pakkann og ruddist í að opna hann án þess að lesa utan á pakkann (já, ég veit, týpisk Sigga!). Innihaldið blasti við mér og ég sagði bara upphátt ,,er þetta eitthvað grín!" Pakkinn var fullur af tannkremstúpum, stórum og litlum! Ég dró auðvitað þá ályktun að tannlæknirinn bróðir minn væri að reyna að vera fyndinn og senda mér tannkrem!!! Rauk með pakkann til Hjalta sem gerði það sem ég hefði átt að byrja á....lesa utan á hann! Þar stóð skýrum stöfum Dr. Gagandeep Shanga! Eheemm já, lokaði pakkanum pent og skilaði honum til póstsins. Passa mig á því núna að athuga hver er viðtakandi pakkanna sem við fáum senda!
Kv.SRS

2 Comments:

  • Langaði einmitt að hirða tannkremið en Hjalti sagði að það væru miklar refsingar við póstsvindli þannig að ég þorði því ekki fyrir mitt litla líf! Ætla nú ekki að láta henda mér í steininn útaf tannkremi!!!!!

    Hey Berglind, hlakka til að leita ráða hjá Hjúkrunarfræðingnum hehe ;) verður enginn friður mjéhjéhjé ;)

    By Blogger Sigridur Ros, at 8:06 PM  

  • Geturðu ekki haft samband við Shanga Manga og reynt að fá fría tannlæknatíma hjá honum fyrir ómakið að koma póstinum til skila :o)

    By Blogger Halla, at 12:18 AM  

Post a Comment

<< Home