Síðasti skólakaflinn á enda...
.....hjá mér allaveganna!
Var að koma heim úr síðasta tímanum mínum í mastersnáminu. Mikil gleði og gaman en líka svolítið skrýtið. Deildin mín splæsti meira að segja í köku handa okkur greyjunum, köku þar sem á stóð Congratulations! Frekar vond Canadian cake, með allt of miklu sætu og sítrónublönduðu kremi....en ég þrælaði henni auðvitað í mig enda verður maður nú að éta það sem boðið er upp á ;)
Var ótrúlega skrýtið að labba heim og hugsa "ég á aldrei eftir að labba hér í þeim tilgangi að fara í tíma aftur!" Loksins er þetta bara búið. Tíminn búinn að vera svo fljótur að líða en samt líka stundum svo hægt, ef einhver fattar hvað ég meina???
En formlega klárast þetta nú hjá mér í næstu viku með lokaskilum, þannig að maður er nú ekki alveg laus strax.
Hjalti klárar í næstu viku og svo þarf hann að fara í próf í einum kúrsi. Þannig að í lok næstu viku verðum við bara búin með námið og bíðum bara eftir útskriftinni til að fá uppáskrifað skírteini í hendur :)
Annars er nú ekkert svakalegt páskafrí hérna. Skírdagur er t.d. ekki frídagur enda var skóli og vinna í dag, en það er frí á morgun Föstudaginn langa og á mánudaginn. Veðrið er að lagast, hitinn á leið upp og sólarglætum spáð en þó rigningardropar inn á milli.
Gleðilega páska öll sömul :)

3 Comments:
Bara bara bara alveg að vera búin!!!
Æði.
Ótrúleg tilfinning af létti, stolti, ógeði á öllu sem tengist náminu og tilhlökkun að fá prófsskírteinið í hendurna.
Gleðilega páska frá okkur í snjóhretunum í Skorradalnum.
Guðrún, Njörður og Dagmar
By
Anonymous, at 2:39 PM
gleðilega páska :)
By
Brynja, at 11:16 AM
gleðilega páska. Ætla ekki að óska ykkur til hamingju fyrr en þetta er alveg búið. en það styttist
By
Anonymous, at 4:08 PM
Post a Comment
<< Home