Hittingur og miðavesen
Vinkonur mínar komu í hitting til mín á þriðjudagskvöldið. Ansi margar voru nú fjarri góðu gamni enda margar í útlöndum að þvælast ;) En þó það væri fámennt var þetta nú bara ansi góðmennt :) Hrefna var brún eftir daginn, Fríða orðin nokkuð búsældarleg, Berglind þreytt eftir göngu og Harpa kom með litla snúðinn sinn hann Alexander (og krílið hennar Fríðu sparkaði bara í hann hehe).
Annars finnst mér verulega asnaleg nýjasta tæknin í Íslandsbanka (já já hann heitir Glitnir en ég kalla hann áfram Íslandsbanka!). Nú þarf maður alltaf að taka númer til að fá þjónustu. Við Hjalti komum þarna inn um daginn og óðum að einum lausum þjónustufulltrúa en þá er gólað á mann ,,þið verðið að taka númer!" Við vorum by the way, ein þarna inni í bankanum. Tókum númerið og um leið og við tókum það úr rifunni var auðvitað kallað á okkur!!! Æ mér fannst þetta nú hálf asnalegt. Svo fór ég í bankann í gær til að skipta kanadískri ávísun (já já það streyma peningar til mín frá Kanada hehe) og ég einmitt kunni nú þrælvel á miðakerfið, ætlaði nú ekki að láta segja mér að taka miða eins og síðast. Ég tók minn miða og settist og fylgdist með fólkinu sem kom inn. Fólk kom inn í bankann, horfði flóttalega í krinum sig og ekki allir að fatta þetta miðadæmi. Svo fyrir rest tekur fólk miða og stendur eins og álfar og vita ekkert hvað á að gera. Æ ég fíla ekki svona. Mér finnst bara gamla góða röðin ágæt, svona miðakerfi finnst mér best eiga heima í sjoppum og verslunum og hana nú!
Guði sé lof fyrir heimabankann :)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home