Sigga Rós og Hjalti

Thursday, July 19, 2007

Sumar og sól

Margt er brallað á sumrin og ekki þarf maður að gráta veðrið.....engu síðra en í Kanada bara ;) Fékk einmitt bréf frá vinkonu minni um daginn þar sem hún tjáði mér að hitabylgja væri væntanleg yfir Vancouver á næstunni, 30 gráður og ríflega það var spáð. Fyrst veinaði ég upp og vildi ólm komast aftur til Vancouver, en svo er veðrið hér búið að vera svo frábært að það toppar næstum því kanadíska hitabylgju. Ríflega 20 gráður og sólbaðsveður alla daga, hvað meira getur maður beðið um :)

Annars erum við búin að fá litla kívíhausinn minn í sumar.....hann Sigurð Snæ, litla snúðinn minn sem elskar að vera úti að drullumalla og Andreu Rós systur hans, litlu Rósina mína :) Við brugðum okkur einnig til Hafnarfjarðar í síðustu viku svo kella gæti gætt þeirra á daginn á meðan mamman var í vinnunni.

Guðrún og Njörður komu í mat til okkar einn blíðviðrisdaginn í sumar. Njörður hafði boðið kellu sinni í óvissuferð sem endaði svo í grilli hjá okkur :) Það var nú aldeilis gaman að fá þau á Selfossið :)

Á svaka flottum degi fyrir nokkru löbbuðum við upp á Ingólfsfjall með Hugborgu, Grétari og Vilborgu, systur hans. Magnað veður og logn upp á fjalli. Við urðum fyrir vikið sveittari en allt sem sveitt er og því ansi glæsileg þegar við komum niður :) En þvílíkt útsýni sem við fengum :) Frábært að labba þarna upp á góðum degi.




2 Comments:

  • Hejjeeelllóó

    Takk aftur fyrir skemmtilegan dag og einn sá eftirminnilegasti af sumrinu. Þið eruð höfðingjar heim að sækja! :)

    Toddlodododooo
    guðrún

    By Anonymous Anonymous, at 2:55 PM  

  • hei - það er nú ekkert sumar og sól lengur - meira svona haust og hávaðarok ;)

    By Blogger Brynja, at 5:08 PM  

Post a Comment

<< Home