Vetur konungur
Þá er herra Vetur genginn í garð með sínum kuldabolum sem bíta í kinn. Fyrsti vetrardagur var um helgina, mig minnir á laugardaginn. Það var vetrarfrí í skólanum á föstudag og mánudag. Litli hafnfirski snúðurinn minn var líka í fríi á leikskólanum á mánudag og kom því í heimsókn á Selfoss til frænku. Fékk að gista eina nótt í "hundabæli" á gólfinu, en það nefnist dýnan á gólfinu á Siggumáli!!! Brölluðum við vinirnir margt saman og drengurinn auðvitað eins og ljós allan tímann. Tókum að okkur að gefa kanínukvikindunum hans Óskars að éta því þau voru á Akureyri. Kanínan sem ég gætti fyrr í sumar er sem sagt búin að fjölga sér, átti þó nokkuð marga unga og nú eru eftir þrír. Baráttan mín fyrir betra híbýli handa kanínunni bar árangur og hefur nú kella og ungarnir allan bílskúrinn út af fyrir sig :)
Ég og Siggi litli gáfum þeim gott að éta og horfðum á í fjarlægð....báðum álíka illa við svona kvikindi ;)
En einnig var verið að kenna drengnum litina. Held að strákurinn nenni bara ekkert að læra þessa blessuðu liti. Vorum í gönguferð og ég spyr "hvernig er snjórinn á litinn?" "Uhhhhh grænn!" Svo sagði hann reglulega eftir miklar yfirheyrslur um litina, "ég nenni ekki meiru svona!" Þannig nú var sett á boot camp í litafræðum og táknin kennd með til að festa í minni. Litunum hefur drengurinn lítinn áhuga á eeeeen man sko táknin ;)
Fór í góðan saumaklúbb til Brynju vinkonu í gær. Fengum þar dýrindis súpu og svaðalega góða súkkulaðiköku mmmmmmm. En gott að hitta kellur, vantaði þó nokkrar en gaman var samt sem áður. Er ekki frá því að ég hafi verið pínu þreytt í morgun þegar ég las hljóðsöguna um ófreskjurnar sem góluðu óóóóóóó :)
Kv. SRS

0 Comments:
Post a Comment
<< Home