Sigga Rós og Hjalti

Thursday, November 22, 2007

Kæru vinir!

Eins og flestir vita þá breyttist líf okkar allra í fjölskyldunni mikið þann 8. nóvember. Skyndilega var fótfestunni kippt undan okkur öllum, gríðarlegt áfall skall á okkur öllum. Pabbi fékk heilaáfall, blóðtappa vinstra megin í stóra heila. Missti mátt í hægri helming líkamans og málið.

Pabbi komst strax undir læknishendur enda ég, mamma og Hjalti heima og náðum við að kalla á sjúkrabíl strax. Pabbi var á leiðinni út að skrifa frétt þegar áfallið dundi yfir og þökkum við Guði fyrir að hann var ekki kominn út í bíl. Áfallið gerði engin boð á undan sér heldur skall á honum eins og elding.
En við tók mikil bið og von. En áfallið verður ekki tekið til baka og nú horfum við öll fram á veginn. Pabbi er nú kominn inn á Grensás og byrjaður í endurhæfingu. Það gengur ótrúlega vel hjá honum. Hann er einbeittur og sterkur og setur markið hátt. Sinnir æfingunum sínum einstaklega vel og fær aukaæfingar hjá ættingjum :)
Pabbi er að æfa sig að ganga núna. Fyrir þremur dögum gekk hann við göngugrind og náði að draga hægri fót með. Í dag gekk hann við handrið og lyftir fætinum mun meira. Hann er farinn að gefa frá sér hljóð, sönglar og sagði í gær fyrstu orðin. Þau orð voru þau fallegustu sem ég gat hugsað mér.....en hann sagði við mömmu "ég elska þig." Það er erfitt fyrir hann að gefa frá sér hljóð, en það kemur og hann er duglegur að reyna.

Ég er svo stolt af elsku pabba mínum. Hann er algjör hetja og dugnaðarforkur. Sterkur maður sem gerir allt sitt til að ná bata. Nú hugsum við bara jákvætt. Við breytum ekki því sem liðið er, við getum aðeins hugsað jákvætt fram á við og haft trú á því að pabbi nái bata. Við þökkum líka fyrir að pabbi lifði áfallið af og er hjá okkur ennþá. Jákvæðar hugsanir er það sem pabbi og mamma þurfa núna, við einblínum á færnina sem hann hefur núna og horfum fram á veginn.

Við viljum þakka ykkur öllum, kæru vinir, vandamenn og kunningjar sem hafa haft samband síðustu daga. Við finnum að þið hugsið til okkar allra og biðjið fyrir pabba. Mamma sendir sérstakar kveðjur og þakklæti til ykkar allra. Stuðningur ykkar og bænir er okkar styrkur. Ástarþakkir.

Kær kveðja
Sigga Rós og fjölskylda

3 Comments:

  • Elsku vinkona. Þið eruð svo ótrúlega sterk og kraftmikil fjölskylda. Ég sit hérna bara með tárin í augunum af aðdáun. Haldið áfram að vera svona dugleg og farið vel með ykkur. Knús til ykkar frá okkur hérna í Lúx. Hringi fljótlega.

    By Anonymous Anonymous, at 8:15 AM  

  • Sæl Sigga mín, pabbi þinn er sko mikill atorkukarl í krapinu. Þetta voru mér þvílíkar sorgarfréttir að eigi get ég sett þær í orð, langar hins vegar að segja þér að þetta mun koma mikið meira til baka. Enda er maðurinn þvílíkt heljarmenni og hefur ekki stundað "sama líferni og margir gera" Aftur á móti tók það mig 5 mánuði að byrja að tala eftir slysið sem ég lenti í´83.

    By Anonymous Anonymous, at 12:26 AM  

  • Elsku Sigga og fjölskylda

    Vissi ekki af þessu fyrr en núna þegar ég les greinina. Fékk bara tár í augun.

    Þið eruð svo samhent að þetta á sko ekki eftir að verða steinn í götu ykkar.

    Hann er harðjaxl hann pabbi þinn, það sést undir eins...

    Óskum áframhaldandi bata og gangið ykkur vel

    guðrún/njörður

    By Blogger Unknown, at 8:51 AM  

Post a Comment

<< Home