Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, September 11, 2007

Haustþvættingur

Ehemmmmm....ekki lengur sumar og sól, heldur meira svona haust, rok og rigning!!!!

Langt síðan ég bloggaði síðast enda mun ég nú líklega loka þessu bloggi...enda enginn tími í slíkt hjá annasamri kennslukonu :)
Er sem sagt farin að kenna niðri við strönd. Kenni þar 19 frábærum 1.bekkingum og sinni svo sérkennslu. Mjög gaman auðvitað en maður hefur auðvitað nóg að gera. Keyri nú tvisvar í viku til Reykjavíkur þar sem ég er að læra táknmál. Ákvað að skella mér loksins á táknmálsnámskeið, eitthvað sem mig hefur langað til lengi, en í bekknum mínum er einmitt heyrnarskertur nemandi sem talar svolítið táknmál svo það var auðvitað upplagt að skella sér á námskeið. Nú kenni ég sem sagt með röddinni, andlitinu og höndunum...alltaf á fleygiferð hehe :)
En þetta námskeið er frábært. Mér finnst þetta alveg æðislegt. Maður má ekki nota röddina í tímum og það er heyrnarlaus kennari. Frú Sigríður þegir því í þrjá tíma á viku...hmmmm ekki eitthvað sem gerist oft hahahahaha ;) Þetta er bara eins og að læra nýtt tungumál, mjög spennandi.

Svo er ég komin á nýjan og glæsilegan bíl. Þurfti nú bíl til að geta brunað í vinnuna. Fékk þessa líka fínu skoda octaviu, eldrauða með númerinu SR 853....þið vitið Sigga Rós sko ;) Gripurinn hefur fengið nafnið Gíslína í höfuðið á fyrrum eigenda sínum sem ég er viss um að er mikil hefðarfrú ;)

Annars er nú lítið títt.....við bíðum eftir húskostinum sem fer nú bráðum að rísa :)
Fáum okkur reglulega göngutúr í Berghólana :)

Kv. SRS

3 Comments:

  • Á nú bágt með að trúa því að það heyrist ekki píp 3 tíma í viku heehhehee. Svo finnst mér að þú ættir nú að halda áfram að blogga fyrir svona einmanna útlenging í lúxuslandi eins og mig ;)

    knús og kram til ykkar

    By Blogger Elsa, at 2:03 PM  

  • ég er alltaf að kíikja hérna inn... þið megið alveg halda áfram... já eða bara stofna nýtt blogg sem er ekki lengur tengt kanada :)

    By Anonymous Anonymous, at 5:12 PM  

  • Gaman að heyra frá þér aftur Sigga Rós og bannað að hætta að blogga, blogga þá bara sjaldnar, hehe.

    By Anonymous Anonymous, at 10:45 AM  

Post a Comment

<< Home