Dagdeild
Jæja, það kom að því að við fjölskyldan og pabbi tókum völdin svolítið í okkar hendur! Við útskrifuðum pabba hálf sjálf yfir á dagdeildina á Grensás!!!
Okkur fannst mjög erfitt að keyra hann aftur til baka síðasta miðvikudag. Við komum þá á deildina og það var allt eitthvað svo niðurdrepandi, ekki hreint á rúminu hans pabba og bara einhver leiðinlegur andi sem kom yfir okkur. Okkur fannst svakalega erfitt að skilja pabba eftir og fara heim en hann bar sig auðvitað vel. Daginn eftir kom Sigurjón hennar Díönu að heimsækja hann og gera æfingar með honum og þá fór hann svo mikið að segja Sigurjóni að honum leiddist og finndist ekki vera nóg að gera þarna á deildinni. Þá föttuðum við náttúrulega að honum dauðleiddist greyinu. Allar æfingar búnar rétt fyrir þrjú og þá ekkert við að vera fram á kvöld, bara hangs. Hangs er nefnilega eitthvað sem hann pabbi minn hefur aldrei kunnað við. Á föstudaginn þegar við komum að sækja pabba þá var hann búinn að pakka öllu niður og hreinsa allar skúffur....minn bara að útskrifa sig sjálfur :) Við spurðum því bara hvort það væri ekki í lagi að hann færi bara á dagdeildina, kæmi á morgnana og færi svo heim að loknu prógrammi. Jú, það var sko mikið í lagi og lagði læknirinn hans blessun sína yfir þennan ráðahag okkar :) Miklu frekar að láta einhvern annan fá rúmið hans sem þarfnast þess meira því það er víst svo að það er bið í endurhæfingu.
Pabbi fer því núna með Hjalta á morgnana í bæinn. Mjög hentugt því Hjalti vinnur í bænum. Við systkinin ætlum síðan að skiptast á að sækja hann í bæinn en hann er búinn í sínu prógrammi svona hálf þrjú til þrjú. Þá er hann bara kominn heim klukkan fjögur á daginn. Díana skutlaði honum heim áðan. Þegar ég kom úr vinnunni tók pabbi á móti mér í glugganum.....var auðvitað kominn á hjólið og byrjaður að púla!
Grensásdeildin var frábær staður fyrir pabba svona fljótt eftir áfallið. Hann er bara þannig gerður að núna er prógrammið á Grensás orðið full létt fyrir hann og hann vill meiri þjálfun. Hann hefur mikla orku og vill nýta hverja einustu stund til æfinga. Það er því heppilegast núna að hann sé á dagdeildinni því þá getur hann haft eitthvað við að vera eftir að dagskrá þar lýkur. Ég er auðvitað ekki að segja að Grensás sé ekki flottur staður, langt í frá! Það er alveg yndislegt starfsfólk og frábær starfsemi en svona endurhæfing er víst bara einstaklingsbundin, það sem hentar einum, hentar kannski ekki öðrum...svolítið eins og nám og kennsla :)
Jóndi hefur auðvitað verið með aukaæfingar fyrir hann sem eru greinilega að skila sínu. Nálastungurnar eru líka að svínvirka og pabbi náði að hreyfa hendina út til hliðar með eina nálina í sér. Nú ætlar Jóndi að breyta aðeins um nálapunkta, setja meira á talsvæðin en áður. Fingurnir á pabba eru allir að komast á kreik, farnir að hreyfast mun meira. En hann er mjög stirður í hendinni og oft illt í öxlinni og í úlnið. En það er ekki skrýtið þar sem hendin er búin að vera hreyfingarlaus svo lengi.
Málæfingar eru stundaðar af kappi hér. Oft leiðinda æfingar en samt gerðar því æfingin skapar meistarann. Pabbi tók sér ekki frí frá mér í dag þó hann væri búinn að vera í taltíma í morgun. Við æfðum í rúm þrjú korter áðan, unnum með framburð, lestur og lesskilning. Gott að hafa hann svona heima á kvöldin því þá gefst meiri tími til æfinga :)
Það er því dagdeildin sem tók við á nýju ári. Nú lítum við þannig á málin að pabbi sé á leið í sína vinnu á morgnana og við í okkar. Svo hittumst við öll heima að loknum vinnudegi.
Við erum afskaplega glöð með þetta fyrirkomulag. Hann er miklu ánægðari og við líka. Við erum þakklát fyrir að geta haft þetta fyrirkomulag á, að búa bara á Selfossi en ekki einhvers staðar lengra í burtu. Á deildinni hans pabba er t.d. ungur maður að vestan sem á tvær litlar dætur. Hann kæmist ekki á dagdeild svona auðveldlega. Við erum því þakklát fyrir það þó svo að fyrst hafi það verið erfitt.
Þetta er því planið okkar þessa dagana og erum við kát með það.
Ég hef frétt af því að margir lesa fréttir af pabba hér á vefsíðunni :) Ég vona svo sannarlega að þessar fréttir gleðji ykkar hjörtu jafn mikið og okkar því í hugum okkar var þessi möguleiki einhvern veginn aldrei inni í myndinni svona fljótt. Á morgun er 8.janúar, tveir mánuðir síðan áfallið réði yfir. Stundum finnst mér eins og það séu mörg ár síðan þetta gerðist en þá stoppar maður um stund, lítur til baka og hugsar sig um. Tveir mánuðir, þetta stóra heilaáfall og öll þessi færni......Kraftaverk!!!!
Ástarþakkir fyrir góðar kveðjur, hugsanir og bænir.
Kv. Sigga Rós

1 Comments:
Kæra Sigga Rós,
á flakki um netið datt ég hér inn og það er gott að heyra/lesa að pabba þínum fer svona vel og mikið fram með hverjum deginum sem líður. Ég minnist hans í bænum mínum. Skilaðu kveðju til hans frá mér.
Alla, dóttir Ingunnar
By
Alla, at 1:35 PM
Post a Comment
<< Home