Dagdeildin gengur vel
Jæja fyrsta vikan hans pabba á dagdeildinni. Hún hefur gengið mjög vel og þetta fyrirkomulag er miklu betra. Hann fer með Hjalta á morgnana klukkan rúmlega 7 og er svo kominn heim klukkan 4 á daginn. Minnsta málið fyrir okkur að sækja hann í bæinn, höfum bara gaman af því.
Pabbi stendur sig alltaf jafn vel í æfingunum sínum. Fer nú orðið daglega í sund á Grensás, fer bara einn í sundið þar :) Aukaæfingar sem hann vill gera. Hann var líka vanur að fara alltaf í sund kl. 6:30 á morgnana með Húnahópnum sínum. Það styttist nú í að hann taki þá rútínu upp aftur hef ég trú á.
Hann er nú kominn með nýjan talmeinafræðing, Sigga tal fór í námsleyfi og þessi nýja heitir Bryndís. Pabbi kemur með heimaverkefni hingað heim og gerum við þær æfingar í sameiningu, auk þess sem ég held áfram með það sem ég hef verið að gera með honum.
Jóndi er alltaf jafn elskulegur að koma til hans pabba. Kemur nánast daglega til að þjálfa hann eða stinga í hann nálum. Í vikunni stakk hann fullt af nálum á ný svæði, stakk í höfuðið vinstra megin og setti svo rafstuð á milli nálanna. Með þetta sat pabbi í 3 korter.....var nú eiginlega eins og vélmenni með þetta allt saman í sér. Mamma gat varla horft á, fannst þetta svo óhuggulegt en ég fylgdist nú með þessu og þykir spennandi. Hef mikla trú á því að nálastungurnar hjálpi pabba mikið. Hann segir það líka sjálfur. Þessar nálar í höfðinu voru fyrir talsvæðin.
Núna áðan fóru mamma og pabbi í bíltúr á Laugarvatn til að hitta Kára og Kristjönu. Kári búinn að undirbúa prógram og æfingar fyrir pabba. Kristjana bauð svo mömmu upp á nudd hjá sér á meðan karlarnir þjálfa. Æðislegt af þeim :)
Um síðustu helgi fórum við Hjalti að einangra í húsinu okkar. Pabbi hefur verið mjög spenntur og fylgst vel með húsinu. Hann ætlaði sér nú að hjálpa okkur með þetta og ég veit að hann var farinn að hlakka til að hamast í húsinu. En nú fylgist hann bara með úr fjarlægð og reynir að vera eins mikið með og hann getur. Um síðustu helgi þá fór hann, ég og mamma að kíkja út í hús. Sá þá ekki pabbi hvar ullarpakkningar stóðu á gólfinu. Ruddist að pökkunum og byrjaði að rífa af þeim með stafnum sínum. Mamma skildi ekkert hvað hann ætlaði nú að gera en hann opnaði pakkningarnar og setti svo sjálfur ull í 17 hólf :) Það var því vel við hæfi að hann fengi fyrsta handtakið í húsinu :) Við sáum vel að hann klæjaði alveg í fingurna, langaði svo að vera með í verkinu :) En við erum dugleg að segja honum frá, hvað sé að gerast og hvernig við gerum hlutina. Hann getur allaveganna tekið út verkið og sagt okkur til :)
Kær kveðja
Sigga Rós

4 Comments:
Vá gaman að heyra að nýja árið byrjar svona vel hjá ykkur.Er mikið stolt af vinkonu minni Siggu Polo og hef mikla trú á því að hann pabbi þinn verði fljótur að ná sér og komast í fyrra form, ef ekki betra.Heyrumst fljótlega og bið að heilsa,Kolbrún
By
Anonymous, at 8:48 PM
Sæl verið þið
Bið fyrir bestu batakveðjur til hans pabba þíns með hlýjum sólskinskveðjum að vestan - það vorar fyrr en varir, Guðrún Stella Gissurardóttir (kollegi Sigga á Ísafirði)
By
Anonymous, at 3:33 PM
En gaman að heyra að allt gengur vel. Vildum bara senda fleiri baráttukveðjur og óska til hamingju með framgangin á húsinu. Hlökkum til að koma í kaffi í næstu Íslandsferð. Farið vel með ykkur og kærar kveðjur Elsa, Nonni og Sváfnir Ingi
By
Anonymous, at 10:04 AM
Elsku nafna og frænka. Frábært að fá fréttir af Sigga bróður á blogginu þínu. Þið eruð svo samhent og frábær í öllum ykkar verkum, það er aðdáunarvert og ómetanlegt. Bestu kveðjur Sigríður
By
Anonymous, at 10:07 AM
Post a Comment
<< Home