Sigga Rós og Hjalti

Tuesday, January 22, 2008

Fréttir

Það gengur alltaf jafn vel hjá pabba að fara svona á milli á göngudeildina á Grensás. Nú er hann bara í sinni vinnu á daginn og við hin í okkar :)
Líkamlega sýnir hann mikinn styrk. Notar stafinn sáralítið, eiginlega ekkert. Einstaka sinnum þegar við mamma skipum honum það! Annars vill hann bara labba staflaus enda getur hann það orðið mjög vel. Það er að færast máttur í hægri hendina smátt og smátt. Hreyfir fingurna og getur lyft hendinni og snert á sér ennið. Jóndi var einmitt að hvetja hann til að nota hendina, t.d. þegar hann er að borða kex nú eða klæða sig í sokka. Það er enn bjúgur í hendinni en hann hefur minnkað heilmikið. Um leið og hendin kemst á meira skrið þá mun bjúgurinn líklega hverfa.
Málstolið er erfiðasti hjallinn, fyrir pabba og okkur. Það gengur miklu hægar með málið heldur en líkamlegu þættina. Með nýjum talmeinafræðingi komu líka aðrar áherslur sem ég veit ekki alveg ljóst hverjar eru. Sú kona lætur hann gera mikið af lestrarverkefnum og alls kyns slíku en ég veit að hann vill æfa sig að tala, segja setningar ofl í þeim dúr. Ég þarf bara að búa til einhvers konar æfingar fyrir hann. Ég nú þegar búin að panta mér bók frá Bretlandi sem fjallar um málstol. Á ensku nefnist það aphasia.

Þann 31. janúar er næsti markmiðsfundur. Við bíðum auðvitað spennt eftir þeim fundi enda pabbi löngu búinn að sprengja skalann á síðustu markmiðum en það var t.d. að vera laus úr hjólastól fyrir jól og verða sjálfbjarga! Ég hlakka mikið til að vita hver markmið talmeinafræðingsins verða.

Pabbi og mamma lyftu sér upp um helgina. Óskar bróðir bauð þeim í bíó, á íslensku myndina Brúðgumann. Það var gott fyrir þau. Gott að fá tilbreytingu og skemmtun í lífið. Á sunnudag dró ég þau í messu. Þar var m.a. falleg skírnarathöfn og ég held að pabba hafi þótt gott að fara í kirkjuna. Í gær var þeim svo boðið í mat til Önnu og Gúnda. Það hefur því verið nóg um að vera hjá þeim undanfarið :) Jóndi kom auðvitað um helgina, gerði æfingar með pabba og stakk í hann nálum. Þær gera gott, ég hef fulla trú á nálastungunum og pabbi líka. Það er nú það sem skiptir máli. Jákvætt hugarfar og gleði í hjarta :)

Kær kv.
Sigga Rós

2 Comments:

  • elsku nafna, takk fyrir fréttirnar, knúsaðu brósa og mömmu þína frá mér. Sigríður

    By Anonymous Anonymous, at 6:52 PM  

  • Blessuð og sæl elsku frænka. Mikið rosa var ég glöð að finna þetta blogg þitt aftur og sjá að þú værir að skrifa fréttir af frænda. Það er oft erfitt að draga fréttirnar upp úr pabba eins og er nú stundum með þessa menn í fjölskyldunni. Ég veit ekki hvort þú vissir það en Þórir var með Aphasia strax eftir aðgerðirnar og þegar hann fær flog þá virkar það eins. Hann var í stífu talmeinaprógrammi í 4 mánuði og þetta kom allt saman hægt og sígandi. Ég hef fulla trú á að svo verði einnig með pabba þinn, framfarirnar eru gríðarlegar nú þegar og meðan allt er á leið í rétta átt erum við í góðum málum. Skilaðu rosa góðri kveðju frá okkur til pabba þíns og mömmu og alls frændgarðsins!!! Við hugsum mikið til ykkar og erum með ykkur í baráttunni.
    knús og kossar
    Guðrún Erla og co.

    By Anonymous Anonymous, at 3:11 AM  

Post a Comment

<< Home