Markmiðsfundur í gær
Í gær var markmiðsfundur með öllum í teyminu hans pabba. Þar var farið yfir stöðuna, markmið sett fyrir næstu vikurnar og talað um það sem framundan er. Pabba gengur mjög vel í sjúkraþjálfuninni. Sjúkraþjálfarinn hans er með nema hjá sér sem er mikið að vinna með pabba, ungur strákur sem er að láta hann gera ýmislegt öðruvísi. Hann er mjög ánægður með það. Talþjálfun verður aukin. Núna hefur hann fengið talkennslu 4 sinnum í viku en það mun aukast í 6 sinnum í viku. Fær því talkennslu alla daga og tvisvar á fimmtudögum. Við erum mjög ánægð með það enda vildu mamma og pabbi sjálfur sækja það fast að fá meiri talþjálfun fyrir hann. Í talþjálfun er verið að vinna mikið með lesskilning sem hefur aukist töluvert, skv talmeinafræðingnum. Hann heldur svo áfram að gera framburðaræfingar ofl. Hann getur ekki skrifað en það er verkstolið sem hamlar því. En hann á að æfa sig að skrifa eftir orðum og slíkt. Mjög gott að nota einmitt tölvuna og þess háttar.
Eftir páska þá á pabbi að fara í ökumat. Það er gert á Grensás og er ég nú alveg viss um að pabbi mun standast það, sem þýðir að hann mun vonandi verða á rúntinum í vor :) Sérstakur búnaður er settur í bílinn til að hjálpa til varðandi hendina.
Þetta var því fínn fundur og allir mjög ánægðir með pabba. Við erum mjög ánægð með þessa auknu talkennslu, finnst það vera aðalatriðið þessa stundina. Biðjum bara til Guðs um að hún skili sér. Hann langar svo mikið til þess að tala við okkur, segja okkur hluti og stundum bara spjalla. Mér finnst það alltaf jafn sárt þegar ég skil því miður ekkert hvað hann segir og að hann geti ekki tjáð sig. Að geta tjáð sig er öllu mannfólki svo lífsnauðsynlegt, maður getur ekki ímyndað sér líðanina ef maður gæti ekki tjáð sig! Það hlýtur að vera hræðileg tilfinning. En ég óska þess heitt að þetta komi hjá honum.
Í morgun þegar ég var á leið í vinnuna og var að keyra á Stokkseyri sá ég allt í einu stjörnuhrap. Það var svo fallegt og skýrt. Ég var fljót að óska mér en maður á víst alltaf að óska sér við stjörnuhrap, það sagði pabbi mér þegar ég var lítil stelpa og við sáum stjörnuhrap eitt sinn þegar við vorum í sundi snemma morguns :) Ég vona bara að stjörnurnar láti óskir mínar rætast einn daginn.
Í kvöld ætlum við Hjalti að bjóða mömmu og pabba í litla leikhúsið hér á Selfossi og sjá sýninguna Með táning í tölvunni. Veit að hann hefur gaman af því, líka svo gott að komast út og í einhverja tilbreytingu.
Farið vel með ykkur og takk enn og aftur fyrir allt :)
Kær kveðja
Sigga Rós

4 Comments:
Vona innilega að óskin þín rætist Sigga mín :) Gangi ykkur vel
By
Berglind, at 4:08 AM
Elsku nafna, takk fyrir upplýsingarnar enn og aftur. Veit að ósk þín mun rætast :) Trúin, krafturinn, viljinn og jákvæðnin hjálpar á þessum vegi til bata, og Siggi á ómetanlega sterka fjölskyldu og stelpu sem hefur sama járnviljann og jákvæðnina og hann sjálfur og það er fyrir hann ómetanlegt nafna mín. Gangi ykkur vel. Sjáumst vonandi sem fyrst þín nafna og frænka
By
Anonymous, at 1:10 PM
Góður kallinn! Þar sem ég er nú búinn að þekkja kallin í 25 ár þá kemur mér kkert á óvart að hann sprengi alla skala. Hann hefur gert það áður.
Guð blessi ykkur í baráttunni, Siggi rokkar!
Heimir Tomm
By
Anonymous, at 5:09 AM
Þið eruð svo dugleg!!! Hugsa til ykkar á hverjum degi. Haldið áfram að vera svona sterk. Knús og kram. Elsa.
By
Elsa, at 1:44 PM
Post a Comment
<< Home