Sigga Rós og Hjalti

Wednesday, July 23, 2008

hjartadeild

Pabbi er núna á hjartadeildinni. Honum hefur ekki liðið mjög vel, þjáist af mikilli ógleði og er að kasta upp því litla sem hann er að reyna að borða. Það hefur því verið mikil vanlíðan í kringum þetta hjá honum. Hann er líka þreyttur sagði mamma og þarf að hvíla sig. Hann er með öðrum manni á herbergi. Sá maður vissi nú ekki að pabbi væri með málstol, hélt bara að hann væri fámáll. Pabbi segir skýrt já og nei þannig að fólk áttar sig oft ekki á málstolinu, halda bara að hann sé fámáll.
Hann notar myndir og bók til að tjá sig við hjúkkurnar á hjartadeildinni, þær eru ekki eins vanar honum og hjúkkurnar á Grensás sem eru farnar að skilja hann nokkuð vel. En hann er ekkert feiminn við það og hringir hiklaust á þær ef hann vantar eitthvað og lætur þær vita.

Læknirinn talaði um að það væri eðlilegt að hann myndi kannski aðeins staðna í málinu núna meðan hann er að jafna sig. Hann hefur náttúrulega ekkert verið í taltímum í næstum mánuð svo það er heilmikill tími án þjálfunar. Það verður því voða gott þegar hann getur farið að æfa aftur.

Við vitum ekki hversu lengi hann verður á hjartadeildinni. Svo fer hann líklega á Grensás aftur. Vonum bara að honum fari nú að líða betur, svo andstyggilegt að vera með ógleði svona allan daginn, fylgir því svo mikil vanlíðan og átök við að kasta upp.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home